Fótbolti

Heinze á leiðinni til Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Argentínski bakvörðurinn Gabriel Heinze er á leið til ítalska félagsins Roma. Hann mun koma til félagsins á frjálsri sölu frá Marseille. Þessi 33 ára bakvörður mun væntanlega skrifa undir eins árs samning við Roma.

Bologna hafði einnig áhuga á leikmanninum en hann er spenntari fyrir því að spila með Roma.

Heinze hefur komið víða við á ferlinum og meðal annars spilað með Man. Utd og Real Madrid.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×