Fótbolti

Stekelenburg samdi við Roma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marten Stekelenburg á flugvellinum í Amsterdam í gær.
Marten Stekelenburg á flugvellinum í Amsterdam í gær. Nordic Photos / AFP
Hollenski markvörðurinn Marten Stekelenburg hefur gengið til liðs við ítalska félagið Roma frá Ajax í heimalandinu. Kaupverðið er sagt vera um 6,3 milljónir evra.

Viðræður hafa staðið lengi yfir en Stekelenburg skrifaði á endanum undir fjögurra ára samning við Rómverja.

Luis Enrique tók í sumar við stjórastarfinu hjá Roma og hefur verið duglegur að fá nýja leikmenn til félagsins. Stekelenburg er sá sjötti í röðinni en meðal þeirra sem hafa gengið til liðs við Roma má nefna Bojan Krkic og Gabriel Heinze.

Stekelenburg er 28 ára gamall og átti eitt ár eftir af samningi sínum við ajax.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×