Fótbolti

Forlan kominn til Inter - samdi til tveggja ára

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Forlan.
Diego Forlan. Mynd/Nordic Photos/Getty
Diego Forlan, landsliðsmaður Úrúgvæ og besti leikmaðurinn á HM í fótbolta í fyrrasumar, mun spila með Inter Milan á Ítalíu næstu tvö árin en Inter gekk í dag frá kaupum á honum frá spænska félaginu Atletico Madrid. Forlan samdi til ársins 2013 en þessi félagsskipti hafa legið í loftinu í nokkrar vikur.

Hinn 32 ára gamli Forlan er ætlað að fylla í skarð Samuel Eto'o sem var á dögunum seldur til rússneska félagsins Anzhi Makhachkala.

„Diego Forlan er orðinn leikmaður Inter," stóð inn á heimasíðu Inter Milan en Forlan hefur staðið sig frábærlega með Atletico Madrid undanfarin fjögur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×