Fótbolti

Buffon fer aldrei frá Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þó svo markvörðurinn Gianlugi Buffon hafi verið margoft orðaður við fjölda stórliða í Evrópu hefur hann haldið tryggð við Juventus. Hann stefnir á að klára feril sinn hjá félaginu.

"Buffon mun klára sinn feril hér. Það er alveg klárt," sagði Silvano Martina umboðsmaður hins 33 ára gamla Buffon.

"Hann er frábær leikmaður og einstakur karakter. Hann hélt tryggð við félagið er það fór niður um deild. Það hefðu ekki allir gert. Fáir hefðu einnig sætt sig við launalækkun líkt og hann gerði."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×