Fótbolti

Ferli Gattuso lauk næstum vegna augnskaða - sá ferfalt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gattuso á blaðamannafundinum í gær.
Gattuso á blaðamannafundinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan, verður frá næsta hálfa árið vegna meiðsla en litlu mátti muna að þau hefðu bundið enda á feril hans.

Gattuso er 33 ára gamall miðjumaður og hefur ekkert spilað síðasta mánuðinn vegna meiðslanna, eða síðan að AC Milan mætti Lazio í fyrsta deildarleik tímabilsins þann 9. september.

Hann lenti í samstuði við Alessandro Nesta, liðsfélaga sinn, og kom síðar í ljós að hann væri með taugasjúkdóm sem hefði áhrif á sjón hans.

„Samstuðið orsakaði ekki vandamálið heldur varð til þess að það uppgötvaðist. En þessar síðustu 20 mínútur í leiknum gegn Lazio voru hræðilegar. Mér leið eins og ég væri drukkinn. Ég sá Zlatan Ibrahimovic í fjórum mismundandi stöðum inn á vellinum.“

„Ég ætla að koma mér í gegnum þetta. Fyrir þremur vikum sögðu læknarnir mér að það væri möguleiki á því að ferli mínum væri lokið. En það er ekki lengur tilfellið og mun ég leggja mikið á mig til að koma enn sterkari til baka.“

„Ég var um stundarsakir mjög óttasleginn um heilsu mína en nú þegar ég hef gengist undir rannsóknir líður mér betur.“

Gattuso getur ekki gengist undir aðgerð vegna þessa næstu fjóra mánuðina en læknar segja að svona lagað geti mögulega jafnað sig á 2-6 mánuðum.

„Ég get æft en ég sé samt ekki nógu vel. Áður var ég með þrefalda sjón en nú er hún tvöföld. Ég get ekki sent tölvupóst, horft á sjónvarp eða ekið bíl. Það hefur verið erfitt að geta ekki farið með börnin mín í skólann.“

„Ég þarf að bíða í fjóra mánuði eftir aðgerðinni en það mikilvæga er að ég fái að lifa aftur eðlilegu lífi og koma enn sterkari til baka en ég var áður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×