Fótbolti

Hamsik semur við Napoli á morgun

Sögusagnirnar um framtíð Marek Hamsik taka væntanlega enda á morgun þegar hann mun skrifa undir nýjan samning við Napoli. Svo segir Aurelio De Laurentis, forseti Napoli.

"Vonandi fylgir hann samningnum eftir og vaknar almennilega í leiknum gegn Juve því hann hefur ekki alveg verið upp á sitt besta í síðustu leikjum," sagði forsetinn grimmur.

Slóvakinn hefur verið hjá Napoli frá árinu 2007. Hann hefur slegið í gegn þar og mörg félög borið víurnar í hann síðustu misseri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×