Fótbolti

Udinese á toppinn á Ítalíu

Robinho fagnar marki sínu í dag.
Robinho fagnar marki sínu í dag.
Udinese stökk upp í toppsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag er það vann heimasigur á Siena. AC Milan er í öðru sæti eftir stórsigur á Catania.

Juventus hefur reyndar leikið einum leik færra en þessi lið og getur náð toppsætinu á nýjan leik vinni það leikinn sem það á inni.

Inter lék ekki í dag þar sem leik liðsins var frestað rétt eins og leik Juve en það hefur mikið rignt á Ítalíu um helgina.

Úrslit dagsins:

AC Milan-Catania  4-0

1-0 Zlatan Ibrahimovic, víti (6.), 2-0 Robinho (24.), 3-0 Francesco Lodi, sjm (68.), 4-0 Ginaluca zambrotta (71.)

Atalanta-Cagliari  1-0

1-0 Germán Denis (79.)

Cesena-Lecce  0-1

0-1 Juan Cuadrado (56.)

Chievo-Fiorentina  1-0

1-0 Luca Rignoni (66.)

Lazio-Parma  1-0

1-0 Guiseppe Sculli (84.)

Udinese-Siena  2-1

1-0 Dusan Basta (1.), 2-0 Antonio di Natale (64.), 2-1 Francesco Bolzoni (75.)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×