Fótbolti

Macheda saknar þess að geta ekki fengið sér fisk og franskar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Macheda í leik gegn Milan.
Macheda í leik gegn Milan.

Ítalski framherjinn Federico Macheda er þessa dagana í láni hjá ítalska félaginu Sampdoria en Man. Utd samþykkti að lána hann út þessa leiktíð.

Þó svo hann hafi verið lánaður er félagið ekki búið að gefast upp á þessum 19 ára gamla strák og hann er enn ákveðinn í því að stimpla sig inn hjá United.

"Ég get ekki beðið eftir því að komast aftur til Manchester. Ég sakna þó ekki veðursins en ég sakna þess að fá ekki fisk og franskar," sagði Macheda sem ætlar þó að njóta tímans hjá Sampdoria.

"Þessi mánuður hefur verið mjög skemmtilegur. Þetta er vissulega ekki eins og hjá Man. Utd sem er alvöru klúbbur. Ég ætla að standa mig þar að lokum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×