Fótbolti

Totti ekki með gegn Inter í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Totti er lasinn og getur ekki spilað.
Totti er lasinn og getur ekki spilað.

Það er stórleikur í ítalska boltanum í kvöld er Roma sækir Ítalíumeistara Inter heim en meistararnir hafa verið heitir síðan þeir losnuðu við Benitez.

Rómverjar mæta laskaðir til leiks í kvöld enda er fyrirliðinn Francesco Totti fjarri góðu gamni. Hann er veikur og verður ekki klár í slaginn.

Totti veiktist heiftarlega í gær og gat ekki æft með liðinu. Hann fór þar af leiðandi ekki með hópnum til Mílanó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×