Fótbolti

Roma íhugar að reka Adriano

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíumaðurinn Adriano er enn eina ferðina búinn að koma sér í vandræði. Hann neitaði að blása í áfengismæli í heimalandinu þar sem hann var búinn að fá sér í tána. Hann missti fyrir vikið ökuskírteinið í nokkra daga.

Adriano er á mála hjá Roma sem stendur og félagið ku vera að íhuga að segja upp samningi hans við félagið. Er það samdi við framherjann setti félagið margar klausur í samninginn sem leyfa félaginu að segja honum upp ef hann hagar sér ekki almennilega.

Umboðsmaður Adriano er í yfirvinnu við að bera klæði á vopnin enda getur hann vart hugsað sér að skjólstæðingur sinn verða atvinnulaus á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×