Fótbolti

Van Bommel fékk rautt í fyrsta leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Mark van Bommel var ekki lengi að láta til sín taka í ítölsku úrvalsdeildinni en hann fékk að líta rauða spjaldið þegar að AC Milan vann 2-0 sigur á Catania í kvöld.

Van Bommel gekk í raðir AC Milan í vikunni frá Bayern München og fór beint í byrjunarliðið.

Hann fékk áminningu eftir aðeins tíu mínútur og svo síðara gula spjaldið sitt á 54. mínútu leiksins. Þá var staðan enn markalaus.

En aðeins fjórum mínútum síðar kom Brasilíumaðurinn Robinho AC Milan yfir og Zlatan Ibrahimovic innisiglaði sigurinn með marki fimm mínútum fyrir leikslok.

AC Milan er á toppnum á Ítalíu með 47 stig og er með sjö stiga forystu á Napoli og Lazio. Síðarnenfda liðið á reyndar leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×