Fótbolti

Ronaldinho laus frá Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Barátta Blackburn fyrir því að fá Ronaldinho til félagsins er töpuð því hann mun fara til brasilíska liðsins Gremio eftir allt saman.

Ronaldinho greindi frá því í dag að hann væri búinn að ná samkomulagi um starfslok við AC Milan. Í kjölfarið mun hann skrifa undir samning við  Gremio.

Ronaldinho hefur allan tímann viljað komast til Gremio þar sem hann hóf feril sinn.

Fleiri brasilísk lið hafa reynt að blanda sér í slaginn og spurning hvort einhverju þeirra tekst að lokka Ronaldinho yfir til sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×