Fótbolti

Zlatan hetjan í sigri Milan á Roma

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Zlatan skorar af öryggi úr vítaspyrnunni.
Zlatan skorar af öryggi úr vítaspyrnunni. Nordic Photos / Getty
Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörk AC Milan í 2-1 heimasigri á Roma í dag. Milan heldur því áfram vænu forskoti á toppi deildarinnar.

Milan féll í vikunni úr leik í undanúrslitum ítalska bikarsins og lentu undir á heimavelli í kvöld. Það var Argentínumaðurinn Daniel Osvaldo sem kom gestunum frá Róm yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Heimamenn sneru við blaðinu í síðari hálfleik. Fyrst jafnaði Zlatan úr vítaspyrnu og Svíinn geðþekki var aftur á ferðinni sjö mínútum fyrir leikslok.

Eftir sigurinn hefur Milan sjö stiga forskot á Juventus á toppi deildarinnar. Juventus tekur á móti Inter annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×