Fótbolti

Emil meiddist í sigri Hellas Verona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Emil Hallfreðsson lagði upp fyrsta markið þegar Hellas Verona vann 3-2 sigur á Cittadella í ítölsku b-deildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn skilaði Verona-liðinu á topp deildarinnar en Sassuolo og Pescara eiga bæði leik inni. Það stefnir í harða baráttu milli þeirra um sæti í ítölsku A-deildinni.

Þetta var reyndar stutt gaman hjá Emil í kvöld meiddist snemma leiks og fór útaf á 18. mínútu leiksins. Hann hafði áður lagt upp fyrsta mark leiksins fyrir Grikkjann Panagiotis Tachtsidis á 16. mínútu en markið kom eftir hornspyrnu Emils.

Argentínumaðurinn Juan Ignacio Gomez Taleb kom Verona í 3-0 með tveimur mörkum á 30. og 58. mínútu en Cittadella náði að minnka muninn með tveimur mörkum á síðustu 18 mínútum leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×