Fótbolti

Allegri valtur í sessi

Þó svo tímabilið sé nýhafið er þegar orðið sjóðheitt undir Massimiliano Allegri, þjálfara AC Milan. Liðið er búið að tapa báðum heimaleikjum sínum í ítölsku deildinni.

Gríðarlegar breytingar hafa orðið á liði Milan frá því á síðustu leiktíð og liðið ekki fengið þann liðsstyrk sem á þurfti að halda.

Fjárhagsstaða liðsins er slæm og það varð að selja lykilmenn eins og Zlatan Ibrahimovic og Thiago Silva.

Gamlar stjörnur Milan á borð við Alberigo Evani og Alessandro Nesta hafa stigið fram fyrir skjöldu og sagt að það væru mistök að reka Allegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×