Fótbolti

Juventus skoraði sex á lið Birkis

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna í kvöld.
Leikmenn Juventus fagna í kvöld. Nordic Photos / AFP
Juventus vann auðveldan 6-1 útisigur á Pescara í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Birkir Bjarnason var ónotaður varamaður hjá Pescara.

Fabio Quagliarella skoraði þrennu fyrir Juventus í kvöld en staðan var orðin 5-1 þegar fyrri hálfleikur var flautaður af. Sjötta markið kom svo snemma í síðari hálfleik.

Juventus situr í efsta sæti deildarinnar með 31 stig og er með fjögurra stiga forystu á Inter sem á leik til góða.

Pescara er í fjórtánda sæti deildarinnar með ellefu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×