Fótbolti

Inter hafði betur gegn Emil og félögum

Cassano reynir að brjótast í gegnum vörn Verona. Emil fylgist með.
Cassano reynir að brjótast í gegnum vörn Verona. Emil fylgist með.
Emil Hallfreðsson og félagar í B-deildarliði Hellas Verona eru úr leik í ítalska bikarnum eftir tap, 2-0, gegn stórliði Inter.

Verona stóð lengi vel í Mílanórisanum og markalaust var í hálfleik.

Þeir Cassano og Guarin skoruðu aftur á móti snemma í þeim síðari og kláruðu leikinn fyrir Inter.

Emil lék sem fyrr á miðjunni hjá Verona og spilaði allan leikinn. Hann fékk gult spjald í síðari hálfleik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×