Fótbolti

Cavani skaut Roma í kaf

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cavani fagnar marki í kvöld.
Cavani fagnar marki í kvöld. Mynd / Getty Images
Napoli vann frábæra og sannfærandi sigur, 4-1, á Roma í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Edinson Cavani skoraði þrjú fyrstu mörk Napoli í leiknum en þessi magnaði framherji hefur verið orðaður við öll stóru liðin í Evrópu.

Christian Maggio skoraði síðan lokamark Napoli. Eina mark Roma gerði Daniel Osvaldo.

Napoli er í þriðja sæti deildarinnar með 37 stig en Roma er í því sjötta með 32 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×