Fótbolti

Bróðir Berlusconi með kynþáttaníð í garð Balotelli

Balotelli fagnar með Milan.
Balotelli fagnar með Milan.
Ballið er byrjað hjá Mario Balotelli í Mílanó. Hann gerði reyndar ekkert af sér að þessu sinni en varaforseti félagsins og bróðir eigandans,Silvio Berlusconi, sá alveg um það. Bróðirinn heitir Paolo Berlusconi og er greinilega ekkert allt of vel við hörundslitað fólk.

"Nú hef ég fengið nóg. Við erum öll að fara að hitta fjölskylda þessa negra. Hann er klikkaður," sagði Paolo nokkrum tímum fyrir leik Milan og Udinese um helgina.

Þessi 64 ára fjölmiðlamógull lét orðin falla á pólitískum fundi. Atvikið náðist á myndband og hefur verið sýnt í fjölmiðlum þar ytra.

Þetta atvik kemur aðeins mánuði eftir að leikmenn Milan löbbuðu af velli er Kevin Prince Boateng varð fyrir kynþáttaníði.

Þá hrósaði forsetinn Silvio Berlusconi liðinu og sagði að félagið hefði enga þolinmæði gagnvart fólki sem væri með kynþáttaníð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×