Fótbolti

Zeman rekinn frá Roma

Zdenek Zeman.
Zdenek Zeman.
Hinn reyndi tékkneski þjálfari, Zdenek Zeman, er í leit að nýrri vinnu eftir að hann var rekinn frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Roma um helgina.

Zeman fékk sparkið eftir að Roma hafði tapað 4-2 á heimavelli gegn Cagliari. Roma er í áttunda sæti deildarinnar og hefur ekki gengið vel í vetur.

Þjálfarinn segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að leikmenn liðsins hafi snúist gegn honum og því hafi hann þurft að fara.

"Það er alls ekki svo að leikmenn hafi yfirgefið mig. Þeir léku aldrei gegn mér. Auðvitað er ég ekki kátur með að hafa verið rekinn. Ég er búinn að ræða við stjórnina og Francesco Totti. Stuðningsmennirnir hafa sýnt mér stuðning og hlýju. Það er ánægjulegt enda átti ég ekki von á því," sagði Zeman.

Roma er níu stigum frá Meistaradeildarsæti en þar situr Lazio.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×