Fótbolti

Balotelli skoraði tvö en segist ekki vera í formi

Balotelli fagnar í gær.
Balotelli fagnar í gær.
Mario Balotelli var ekki lengi að stimpla sig inn í ítalska boltann en hann skoraði bæði mörk AC Milan í 2-1 sigri á Udinese í gær.

"Ég átti að byrja leikinn á bekknum en þar sem Pazzini meiddist fékk ég að byrja leikinn," sagði Balotelli eftir leik.

"Ég er afar ánægður þó svo þetta hafi verið erfiður leikur. Ég er sterkur en lappirnar eru þreyttar. Ég hef ekki spilað mikið upp á síðkastið og þarf að æfa meira til þess að komast í almennilegt form."

AC Milan er í fjórða sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×