Fótbolti

Allegri: Balotelli getur orðið heimsklassaleikmaður

Massimiliano Allegri, þjálfari AC Milan, er hæstánægður með nýja leikmanninn, Mario Balotelli, en hann hefur farið á kostum í fyrstu leikjum sínum með liðinu.

Balotelli var keyptur frá Man. City í janúar. Hann skoraði tvö mörk í fyrsta leiknum og eitt í næsta.

"Ég er mjög ánægður með hans framlag hingað til. Hann hefur alla burði til þess að verða heimsklassaleikmaður. Þá verður hann að helga sig fótboltanum," sagði Allegri.

"Vonandi fer hann eftir mínum ráðum. Ef hann gerir það og einbeitir sér að boltanum eru honum allir vegir færir."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×