Fótbolti

Mikilvæg stig hjá Hellas Verona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil Hallfreðsson í leik með Verona.
Emil Hallfreðsson í leik með Verona. Nordic Photos / Getty Images
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn þegar að lið hans, Hellas Verona, vann mikilvægan sigur á Varese í ítölsku B-deildinni í dag.

Verona er í þriðja sæti deildarinnar með 50 stig en Varese er í næsta sæti á eftir með 43 stig. Varese hefði því minnkað muninn í eitt stig með sigri í dag en Verona er nú með dágóða forystu á næstu lið í deildinni.

Sassuolo og Livorno eru í efstu tveimur sætunum og unnu bæði sína leiki í dag. Fyrrnefnda liðið er með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar en Verona er aðeins fjórum stigum á eftir Livorno.

Tvö efstu lið deildarinnar komast beint upp en liðin í 3.-6. sæti taka þátt í umspili um sæti í ítölsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×