Fótbolti

Fimmta mark Balotelli í fimm leikjum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Mario Balotelli var enn og aftur á skotskónum í kvöld en hann skoraði eitt marka AC Milan í 2-0 sigri á Genoa á útivelli í kvöld.

Giampaolo Pazzini meiddist þegar hann var tæklaður af Daniele Portanova á átjándu mínútu. Hann hélt þó áfram og kom AC Milan yfir fjórum mínútum síðar með föstu skoti.

Pazzini neyddist þó að fara út af vegna meiðslanna stuttu síðar og kom Balotelli inn á í hans stað. Balotelli skoraði svo síðara mark liðsins á 60. mínútu.

AC Milan missti svo Kevin Constant af velli er hann fékk sína aðra áminningu á 65. mínútu en það kom ekki að sök.

Genoa var meira með boltann og átti fleiri skot en liðið náði ekki að komast fram hjá Christian Abbiati í marki AC Milan.

Balotelli gekk í raðir AC Milan í janúar síðastliðnum frá Manchester City. Síðan þá hefur hann skorað fimm mörk í jafn mörgum deildarleikjum.

AC Milan er í þriðja sæti deildarinnar með 51 stig, átta stigum á eftir toppliði Juventus. Genoa er í sautjánda sæti deildarinnar með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×