Fótbolti

Jafntefli í toppslagnum á Ítalíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giorgio Chiellini fagnar marki sínu.
Giorgio Chiellini fagnar marki sínu. Mynd/AP
Juventus er áfram með sex stiga forskot á Napoli í ítölsku A-deildinni í fótbolta eftir að tvö efstu lið deildarinnar gerðu 1-1 jafntefli í Napólíborg í kvöld.

Napoli hefur ekki tapað í síðustu tíu leikjum en þetta var fjórða jafntefli liðsins í röð í deildinni og því er staða Juve áfram góð á toppnum.

Varnarmaðurinn Giorgio Chiellini kom Juventus í 1-0 á 10. mínútu eftir sendingu frá Andrea Pirlo en Svisslendingurinn Gökhan Inler jafnaði tveimur mínútum fyrir hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×