Fótbolti

Garcia vill halda Strootman

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Strootman var í stóru hlutverki hjá Roma áður en hann meiddist.
Strootman var í stóru hlutverki hjá Roma áður en hann meiddist. Vísir/Getty
Rudi Garcia, knattspyrnustjóri Roma, vonast til að halda Kevin Strootman í herbúðum liðsins, en hollenski miðjumaðurinn hefur verið þrálátlega orðaður við Manchester United undanfarna mánuði.

„Strootman er mikilvægur leikmaður og hann verður vonandi með í heimaleiknum gegn Manchester City,“ sagði Garcia á blaðamannafundi eftir 1-1 jafntefli Roma og City í Meistaradeild Evrópu í fyrradag.

„Hann er frábær leikmaður og við hlökkum mikið til að fá hann aftur til baka. Við vonum að hann snúi aftur sem fyrst.“

Strootman er enn frá vegna meiðsla, en hann sleit liðband í hné í mars og missti af þeim sökum af HM í sumar.

Garcia sagði jafnframt að Roma, sem er með fullt hús stiga í ítölsku deildinni, myndi gera allt til að halda Strootman í herbúðum liðsins.


Tengdar fréttir

Garcia: Pressan er á Manchester City

Rudi Garcia þjálfari ítalska A-deildarliðsins Roma hóf sálfræðihernaðinn í gær fyrir leik Manchester City og Roma í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×