Fótbolti

Birkir varamaður í fyrsta sinn á tímabilinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birkir í leik með Pescara.
Birkir í leik með Pescara. Vísir/AFP
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður er lið hans, Pescara, gerði 1-1 jafntefli við Bari í ítölsku B-deildinni í kvöld.

Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem að Birkir er á bekknum hjá Pescara en hann hafði byrjað í átta deildarleikjum af tíu fyrir kvöldið.

Pescara er í átjánda sæti deildarinnar með níu stig en Bari er í því tíunda með fimmtán. Pescara féll úr ítölsku úrvalsdeildinni í vor og hefur því byrjun liðsins á tímabilinu valdið miklum vonbrigðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×