Stór-Reykjavíkursvæðið er tilraunadýr Bubbi Morthens skrifar 10. september 2015 09:00 Silicor Materials hefur fundið út að Ísland sé kjörið tilraunaland fyrir framleiðslu sína. Önnur lönd vilja þá ekki og þeir sem létu glepjast sluppu með skrekkinn því Silicor stökk frá borði þegar á reyndi í henni Ameríku. Nýjasta nýtt er að þetta fyrirtæki, sem er að reyna að vinna sér inn gúddvill hér, hefur ákveðið að neita að taka við stefnu sem hefur verið sett fram með kröfu um að fyrirtækið fari í umhverfismat. Það er mjög óvenjulegt að fyrirtæki sem er í löglegum rekstri neiti að taka við stefnu, nánast einsdæmi. Menn eru því mjög uggandi yfir þessu. Hvað gerist ef umhverfisslys á sér stað, hvert á fólk að sækja málið? Á fólk að sækja á fyrirtæki sem lætur sig hverfa þegar eitthvað bjátar á, fyrirtæki sem felur sig í Ameríku? Mun íslenskur almenningur sem verður fyrir skaða þurfa að reka mál í Ameríku gegn þessum lukkuriddurum? Spyr sá sem ekki veit. Öll svör Faxaflóahafna eru á þann veg að það mætti halda að við byggjum ekki í landi þar sem upplýst umræða fer fram – sem er að vísu kannski rétt. Faxaflóahafnir reyna að tyggja það ofan í fólk að þetta skrímsli sé að mestu mengunarlaust. Að mestu. Hvað þýðir það? Að mestu nokkur tonn af drullu sem fólkið í sveitinni mun anda ofan í sig? Tugir tonna að mestu? Þetta er ekki ásættanlegt. Það vita allir að stóriðja er ekki og mun aldrei verða mengunarlaus. Allar upplýsingar hingað til hafa verið einhliða áróður frá Silicor Materials og taglhnýtingum þeirra. Allt á tilraunastigi Og ekki má gleyma því að þetta er allt á tilraunastigi og tilraunadýrið er Hvalfjörður og Stór-Reykjavíkursvæðið. Þessi einhliða áróður hefur ekki getað byggt upp neitt traust, því miður. Silicor yrði öflug viðbót við efnamengun, sjónmengun, hávaðamengun og ljósmengun sem nú þegar fylgir stóriðjunni á Grundartanga og myndi hafa ófyrirséð samlegðaráhrif með hinum iðjuverunum þar. Í kjölfarið myndu lífsgæði fólksins sem hefur hlotnast sú gæfa að búa og ráða löndum í Hvalfirði skerðast á þann hátt að óbærilegt verður fyrir marga. Í þessu sambandi er rétt að benda á að sanngjörn krafa neytenda um upprunamerkingar matvæla verður sífellt háværari. Hafið þið heyrt þann brandara áður að stóriðja sé réttlætanleg vegna mikillar atvinnusköpunar? Þarna er verið að blanda saman tveimur ólíkum málefnum. Stóriðja skaðar náttúru og lífríki. Þess vegna á ekki undir nokkrum kringumstæðum að koma henni fyrir í landbúnaðarhéraði. Atvinna er annað mál og mikilvægt, en það er ekki atvinnuleysi við Hvalfjörð. Vegna Silicor þyrfti að flytja starfsmenn tugi kílómetra með tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda og jafnvel sækja þá til útlanda. Einnig þyrfti að flytja varning til og frá verksmiðjunni á sjó og landi með ómældri mengun. Þessi atriði hafa ekki verið tekin inn í heildarmyndina, ekki frekar en versnandi lífsgæði íbúa og landeigenda við Hvalfjörð vegna áhrifa frá Grundartanga. Menn hafa réttlætt stríð með þess konar rökum. Ríkisstjórn Íslands rekur stóriðjustefnu sem er svo heimsk og glórulaus í eðli sínu, svo fjandsamleg náttúru og íbúum þessa lands að það er nánast yfirnáttúrulegt. Það er margt sem bendir til þess að ekki hafi verið farið að lögum í undirbúningi þessa máls. 1. Fyrirhuguð framkvæmd Silicor Materials fellur betur að þeim framkvæmdaflokki í lögum um mat á umhverfisáhrifum sem varðar framleiðslu á hrámálmi, með málmvinnslu- og efnafræðilegum aðferðum, og skal framkvæmdin því ávallt háð mati á umhverfisáhrifum. 2. Fyrirhugaðar framleiðsluaðferðir eru hreinsun á kísil með því að bræða kísilinn í fljótandi áli. 3. Flokkun framkvæmdarinnar sem framleiðslu er í samræmi við tilgang laga nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum, tilskipun Evrópusambandsins nr. 2011/92/EBE og niðurstöður Evrópudómstólsins. 4. Sé ekki hægt að fallast á að framkvæmdin sé framleiðsla, og framkvæmdin þess í stað flokkuð sem bræðsla málms eða hreinsun, þá verður samt sem áður að telja að framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum þar sem hún getur haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. 5. Ákvörðun Skipulagsstofnunar hefur formgalla sem eru í andstöðu við reglur stjórnsýsluréttar. Það er því afstaða þeirra sem vilja að verksmiðjan fari í umhverfismat að niðurstaða Skipulagsstofnunar sé röng og að umhverfismat skuli, lögum samkvæmt, fara fram. Takið eftir, allir íbúar Stór-Reykjavíkursvæðisins: Þetta skiptir ykkur miklu máli. Setjum þetta í röð: 1. Straumsvík 2. Járnblendið, tvær verksmiðjur í raun 3. Hellisheiðarvirkjun 4. Stálverksmiðjan á Grundartanga 5. Silicor Materials Allt þetta er á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Börnin okkar eru umkringd eiturspúandi stóriðju. Og þeir sem eiga að gæta hagsmuna okkar eru að maka krókinn. Þú getur stoppað þetta. Þú getur haft áhrif. Þú einn getur passað að barnið þitt fái að lifa laust við mengun í næsta nágrenni þínu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bubbi Morthens Mest lesið Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira