Fótbolti

Markalaust í stórleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tæklingarnar flugu á San Siro í kvöld.
Tæklingarnar flugu á San Siro í kvöld. vísir/getty
Inter og Juventus gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var gríðarlega harður en fjögur gul spjöld fóru á loft á fyrstu 16 mínútunum og átta í heildina.

Þjóðverjinn Sami Khedira komst næst því að skora þegar skot hans hafnaði í stöng Inter-marksins um miðjan seinni hálfleik.

Inter er í 3. sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins fengið tvö stig í síðustu þremur leikjum eftir að hafa unnið fyrstu fimm leiki sína.

Ítalíumeistarar Juventus eru hins vegar í 14. sæti með einungis níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×