Kitchenaid-hræra og kaffipokar notuð við framleiðslu amfetamíns í bústaðnum í Borgarfirði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. september 2019 11:45 Sumarbústaðurinn í Heyholtslandi í Borgarfirði þar sem amfetamínsframleiðslan fór fram.
Þess er krafist að fjöldi tækja og tóla til fíkniefnaframleiðslu verði gerður upptækur í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Alls eru sex ákærðir í málinu, þar á meðal þeir Alvar Óskarsson og Einar Jökull Einarsson, sem hlutu þunga dóm í Pólstjörnumálinu svokallaða fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Þeir Alvar og Einar eru ákærðir ásamt Margeiri Pétri Jóhannssyni fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot þar sem þeir eru sakaðir um að hafa framleitt 8,5 kíló af amfetamíni í sumarhúsi í grennd við Borgarnes. Þá eru þremenningarnir einnig ákærðir, ásamt þremur öðrum, fyrir kannabisræktun í útihúsi við sveitabæ skammt frá Hellu.Gaskútar, gróðurhúsalampar og þurrkgrindur Í ákærunni, sem Vísir hefur undir höndum, eru þau tæki og tól sem lögreglan hefur lagt hald á við rannsókn málsins listuð upp. Krafist er upptöku á þeim sem og upptöku á Toyotu Corollu og fjármuna að upphæð um 1,8 milljónir króna. Annars vegar er um að ræða tæki og tóli sem haldlögð voru í tengslum við kannabisræktunina og hins vegar tæki og tól til amfetamínframleiðslu. Krefst lögreglan þannig upptöku á sex gaskútum, 36 gróðurhúsalömpum, 39 viftum, sjö vatnshitablásurum, gasofni, kolasíu, tveimur gróðurtölvum og 55 straumbreytum sem hald var lagt á vegna kannabisræktunarinnar. Einnig er krafist á upptöku á fjórum rafmagnstöflum, 60 ljósaperum, fjórum hitamælum, átta þurrkgrindum og skilvindu, fimm rafmagnssnúrum, fimm viftum, fimmtán kolasíum, fjórum hitablásurum, þrýstijafnara, 32 gróðurhúsalömpum, annars vatnshitablásara og fjögurra þurrkgrinda til viðbótar.Héraðssaksóknari sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins.vísir/vilhelmSleikjur, sprautunálar og sveppaeyðir Hvað varðar amfetamínframleiðsluna er þess krafist að gera upptæka skál, glerskál, tvö laser mælitæki, hræru úr Kitchenaid-hrærivél, tvær glermælikönnur, skóflu, plastskál, fimm rannsóknarmæliglös, ausu, þrjár sleikjur, tvö glerglás, eina skál til og fjóra glerpinna. Þá er þess jafnframt krafist að gera upptækan ethanol brúsa, aseton brúsa, rauða trekt, sveppaeyði og rúllu af lofttæmingapokum, tvær vogir, kaffipoka, innpökkunarvél, kaffipokapakka, sjö 50 millilítra sprautur, tvær sex millilítra sprautur, eina tíu millilítra sprautur, fimm sprautunálar og þrjá dropateljara. Ekki er allt upptalið enn því að auki vill ákæruvaldið gera upptækan poka af plastskeiðum, tvo PH sýrustigs mælistrimla, vog, fjórar rúllur af plastpokum, sextán rúllur af loftþéttum pokum, tvær sellofanrúllur, fjóra kassa af smellulásapokum, öryggisgleraugum og einnota hönskum ásamt tveimur svörtum ruslapokum og öllu sem í þeim var.Rannsaka meint peningaþvætti í tengslum við máliðRÚV greindi frá því fyrr í mánuðinum að lögreglan rannsaki nú meint peningaþvætti í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna í Borgarfirði og í nágrenni Hellu. Þá kom jafnframt fram að fé og eignir fyrir tugi milljóna hefðu verið kyrrsett eða haldlögð. Sagði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn, að skýra þyrfti „ansi mikla peningagjörninga“ sem ættu sér stað innan þess hóps sem væri ákærður og aðeins utan hans líka. „Þannig að mér reiknast svona til í fljótu bragði að við séum með ýmis verðmæti, húseignir, bíla, ýmsa fjármuni, lausafé og fleira, svona eitthvað, það er nú farið að slá upp í 100 milljónir held ég, sem eru með mismunandi þvingunarþætti á sér, eftir því hvers eðlis hlutirnir eru,“ sagði Karl Steinar við fréttastofu RÚV. Þá sagði Karl Steinar að rannsóknin á peningaþvættinu væri langt komin. Grunur léki á að fé hefði verið þvættað í gegnum atvinnurekstur en hann gat ekki tjáð sig frekar um þann hluta rannsóknarinnar.
Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði Borgarbyggð Dómsmál Lögreglumál Pólstjörnumálið Tengdar fréttir Sakaðir um að framleiða átta og hálft kíló af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði Einnig grunaðir um að rækta 200 kannabisplöntur í útihúsi við bæ á Suðurlandi. 31. ágúst 2019 20:11 Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Innlent Fleiri fréttir Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Sjá meira
Sakaðir um að framleiða átta og hálft kíló af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði Einnig grunaðir um að rækta 200 kannabisplöntur í útihúsi við bæ á Suðurlandi. 31. ágúst 2019 20:11