Þungir dómar vegna amfetamínframleiðslu í Borgarfirði Kolbeinn Tumi Daðason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 9. desember 2019 14:38 Margeir huldi höfuð sitt þegar hann var leiddur út úr dómsal. Með honum á myndinni er Steinbergur Finnbogason, verjandi hans.
Sakborningar í umfangsmiklu amfetamínsmáli fengu þunga dóma fyrir aðild þeirra að málinu þegar dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu. Alvar Óskarsson var dæmdur í sjö ára fangelsi og Einar Jökull Einarsson og Margeir Pétur Jóhannsson voru dæmdir í sex ára fangelsi fyrir framleiðslu á átta kílóum af amfetamíni í sumarbústaði í Borgarfirði. Margeir var sá eini sem viðstaddur var dómsuppkvaðninguna. Saksóknari hafði krafist sex til átta ára fangelsis yfir sakborningunum. Þeir Alvar og Einar Jökull fengu þunga dóma í Pólstjörnumálinu árið 2008. Einar Jökull var dæmdur í níu og hálfs árs fangelsi en Alvar sjö ára fangelsi. Margeir Pétur á ekki að baki sakaferil. Sjá einnig: Kitchenaid-hræra og kaffipokar notuð við framleiðslu amfetamíns í bústaðnum í Borgarfirði Þremenningarnir voru einnig ákærðir fyrir framleiðslu á 206 kannabisplöntum í Þykkvabæ. Einar og Margeir neituðu sök en Alvar játaði minniháttar hlutdeild í þeirri ræktun. Margeir Pétur Jóhannsson, hér hulinn klæðum, var sá eini sem var viðstaddur dómsuppkvaðninguna.Vísir/Vilhelm Framleiðslan var stöðvuð í aðgerð lögreglu 7. júní í sumar. Sama dag var umfangsmikil kannabisframleiðsla stöðvuð í Þykkvabæ. Lögreglan hafði haft málið til rannsóknar í tæpt hálft ár eftir að grunur vaknaði um að Alvar Óskarsson, einn hinna ákærðu, stæði að umfangsmikilli fíkniefnaframleiðslu. Dagana fyrir handtökuna hafði lögreglu beitt rannsóknaraðferð sem hún kýs að kalla skyggingu. Er um að ræða aðgerð þar sem óeinkennisklæddir lögreglumenn fylgdust með ferðum sakborninga úr fjarska. Þar á meðal komu lögreglumennirnir sér fyrir á sjónpóstum í grennd við sumarbústaðinn í Heyholti og fylgdust með ferðum og athæfi sakborninga. Þrír til viðbótar hafa þegar játað aðild sína að kannabisframleiðslunni í Þykkvabæ og hlotið skilorðsbundna dóma fyrir. Fjórði maður steig fram skömmu áður en málið fór fyrir dómstóla og tók á sig alla sök í málinu. Saksóknari sagði framburð þess manns mjög ósannfærandi og bæri þess merki að hann vissi lítið en hefði séð myndir af sumarbústaðnum þar sem framleiðslan fór fram. „Dómurinn er mikil vonbrigði fyrir umbjóðanda minn og honum hefur nú þegar verið áfrýjað,“ segir Steinbergur Finnbogason, lögmaður Margeirs, í samtali við Vísi. Hann eigi eftir að leggjast yfir dóminn og skoða hann en það verður vænn lestur enda sé dómurinn upp á sextíu blaðsíður.
Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði Borgarbyggð Dómsmál Tengdar fréttir Vinur Pólstjörnumanna tekur á sig alla sök og segist plagaður af samviskubiti Þremenningarnir sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði neituðu allir sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslendingur, sem sendi lögreglu, saksóknara og verjendum bréf þar sem hann lýsti yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, hélt frásögn sinni til streitu við aðalmeðferð málsins og segist plagaður af samviskubiti. 1. nóvember 2019 16:30 Fá ekki aðgang að dagbókarfærslum lögreglu í stóra amfetamínmálinu Landsréttur hefur hafnað kröfum þess efnis að ákæruvaldið þurfi að afhenda dagbókarfærslur lögreglu og afrit af hlustunum í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn sæta ákæru fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði. 7. október 2019 10:53 Óvæntar vendingar í máli Pólstjörnumanna minna á mál Franklíns Steiner Vinur Franklíns var dæmdur fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi. 3. nóvember 2019 07:00 Krefst sex til átta ára fangelsisdóms yfir Alvari og Einari Saksóknari í umfangsmiklu amfetamínsmáli krefst sex til átta ára fangelsis yfir Alvari Óskarssyni, Einari Jökuli Einarssyni og Margeiri Pétri Jóhannssyni sem sæta ákæru fyrir amfetamínsframleiðslu í sumarbústaði í Borgarfirði. 19. nóvember 2019 11:29 Kitchenaid-hræra og kaffipokar notuð við framleiðslu amfetamíns í bústaðnum í Borgarfirði Þess er krafist að fjöldi tækja og tóla til fíkniefnaframleiðslu verði gerður upptækur í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 9. september 2019 11:45 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira
Vinur Pólstjörnumanna tekur á sig alla sök og segist plagaður af samviskubiti Þremenningarnir sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði neituðu allir sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslendingur, sem sendi lögreglu, saksóknara og verjendum bréf þar sem hann lýsti yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, hélt frásögn sinni til streitu við aðalmeðferð málsins og segist plagaður af samviskubiti. 1. nóvember 2019 16:30
Fá ekki aðgang að dagbókarfærslum lögreglu í stóra amfetamínmálinu Landsréttur hefur hafnað kröfum þess efnis að ákæruvaldið þurfi að afhenda dagbókarfærslur lögreglu og afrit af hlustunum í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn sæta ákæru fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði. 7. október 2019 10:53
Óvæntar vendingar í máli Pólstjörnumanna minna á mál Franklíns Steiner Vinur Franklíns var dæmdur fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi. 3. nóvember 2019 07:00
Krefst sex til átta ára fangelsisdóms yfir Alvari og Einari Saksóknari í umfangsmiklu amfetamínsmáli krefst sex til átta ára fangelsis yfir Alvari Óskarssyni, Einari Jökuli Einarssyni og Margeiri Pétri Jóhannssyni sem sæta ákæru fyrir amfetamínsframleiðslu í sumarbústaði í Borgarfirði. 19. nóvember 2019 11:29
Kitchenaid-hræra og kaffipokar notuð við framleiðslu amfetamíns í bústaðnum í Borgarfirði Þess er krafist að fjöldi tækja og tóla til fíkniefnaframleiðslu verði gerður upptækur í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 9. september 2019 11:45