Skoðun

Heimurinn í greipum heims­far­aldurs

Böðvar Jónsson skrifar

Þegar við stöldrum við í dag og horfum yfir heimssviðið þá er ljóst að mannkynið er að glíma við erfiðleika og fara í gegnum umbrotatímasem ekki eiga sér hliðstæðu í nánustu fortíð. Það jákvæða er að mannkynið hefur aldrei verið betur undir það búið að takast á við vanda af þeirri stærðargráðu sem um ræðir. Lausnarorðið er eining.

Það sem stendur að baki þessari fullyrðingu er sú staðreynd að í raun er heimurinn eins og eitt land. Við grípum farsímann upp úr vasanum og hringjum til annarra heimsálfa jafn fjarlægra og Ásralíu rétt eins og við værum að hringja til Akureyrar eða Neskaupstaðar. Haldnir eru fundir og ráðstefnur þar sem þátttakendur eru dreifðir vítt og breitt um hnöttinn og horfast í augu gegnum tölvuskjáinn. Þetta er aðeins brot af þeim tæknimöguleikum sem ættu að opna augu okkar fyrir þeirri staðreynd að mannkynið sé í raun eitt, og stór hluti þeirra einstaklinga sem það mynda innan seilingar hvers annars. En ekki bara það heldur eru þessar tengingar nánast alfarið óháðar landamærum þjóðríkjanna og gefa þannig tilfinningu fyrir að jörðin sé í reynd eitt land og mannkynið íbúar þess.

Sendingar sem bárust frá Kína með hjálpargögn til Ítalíu vegna Covid 19 benda til þess að einhverjir í Kína hafi komið auga á þetta. Skilaboðin sem fylgdu einni sendingunni og rituð voru á stóran borða hljóðuðu svo: Við erum öldur á einu hafi, lauf á einu tré, blóm í einum garði. Þetta er myndlíking þar sem „við“ vísar til mannanna barna. Tilvitnun sem fylgdi annarri sendingu var á þessa leið: Svo öflugt er ljós einingarinnar að það getur sameinað allan heiminn. Þarna er greinilega vísa til einingar allra sem heiminn byggja án tillits til kynþáttar, hörundslitar, stéttar, trúar, þjóðernis eða annarra augljósra fordóma, sem lítils eru verðir.

Þessi síðasta tilvitnun minnir á orð yfirmanns Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar fyrir nokkru, þegar hann sagði „..að skortur á einingu væri meiri ógn en corona vírusinn sjálfur..“ þannig að aðeins í einingu muni mannkynið sigrast á heimsfaraldrinum sem skapast hefur af Covid 19 veirunni.

Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, hefur ekki látið sitt eftir liggja og ítrekað hvatt til einingar og samstöðu gegn þeim vágesti sem skapar fádæma óvissutíma fyrir heimssamfélagið. Sameinuðu þjóðirnar ættu að vera það verkfæri sem mannkynið getur beitt til einingar í aðstæðum sem þessum. Það væri ekki ónýt afmælisgjöf til stofnunarinnar og mannkynsins ef slíkt tækist á sjötugasta og fimmta afmælisári hennar.

Höfundur er lyfjafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×