Sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping vann 4-2 sigur á Pepsi Max deildarliði breiðabliks í æfingarleik í Svíþjóð í dag en Blikar eru í æfingaferð í Svíþjóð fyrir komandi tímabil.
Hinn sextán ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrsta mark Norrköping í leiknum og það eftir aðeins fimm mínútna leik.
Ísak Bergmann er frá Akranesi og sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara meistaraflokks ÍA. Honum virðist vera ætlað stórt hlutverk hjá sænska liðinu á komandi tímabili. Ísak Bergmann heldur upp á sautján ára afmælið í næsta mánuði.
Ísak vann boltann á miðjunni og skoraði yfir Anton Ara Einarsson í marki Blika en Anton stóð of framarlega í markinu og strákurinn ungi var fljótur að hugsa.
5' MÅL! Isak Bergmann vinner boll på mittplan, målvakten stod långt ute och Isak la in den bakom honom. IFK-Breidablik 1-0#ifknorrkoping
— IFK Norrköping (@ifknorrkoping) February 14, 2020
Norrköping komst í 3-0 í leiknum en staðan var 3-1 í hálfleik. Blikar minnkuðu muninn í 3-2 en Svíarnir áttu lokaorðið.
Thomas Mikkelsen skoraði fyrra mark Blika í lok fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Gísla Eyjólfssyni.
Seinna mark Blika skoraði Viktar Karl Einarsson með góðu skoti af stuttu færi.
Hin mörk Norrköping liðsins skoruðu þeir Carl Björk, Sead Haksabanovic og Lars Krogh Gerson.
Snart avspark!
— IFK Norrköping (@ifknorrkoping) February 14, 2020
På bänken finns Isak Pettersson, Christoffer Nyman, Egzon Binaku, Alfons Sampsted, Kevin Álvarez, Simon Thern, Max Olsson och Dino Salihovic.
Framåt, kamrater - 14.00 kör vi!
#ifknorrköpingpic.twitter.com/MOir7TNxXC
Byrjunarlið Blika í æfinagleiknum gegn IKF Norrköping sem hefst á Östgötaporten vellinum kl.13:00! Leikurinn verður sýndur í Smáranum en þeir sem ekki eiga heimangengt geta keypt sér streymi af Svíunum. Hér er slóð: https://t.co/jJOp5NHL4F
— Blikar.is (@blikar_is) February 14, 2020
Áfram Blikar, alltaf, alls staðar! pic.twitter.com/orGuFCqAfj