Forseti Íslands með nýtt fótboltafélag við bæjardyrnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2020 14:00 Bessastaðir á Álftanesi hafa eignast nýtt fótboltafélag. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnufélagið Bessastaðir er eitt af fjórum nýjum knattspyrnufélögum sem taka þátt í 4. deild karla í knattspyrnu í sumar. Breiðablik er einnig komið með annað „afkvæmi“ í nýju félagi, nýtt fótboltalið var stofnað á Suðurlandi og þá skilgreinir eitt af nýju liðunum sig sem stolt félag með leikmenn með mismunandi uppruna. Fótbolti.net segir frá þessum fjórum nýju knattspyrnufélögum en þau eru Blix, Íþróttabandalag Uppsveita, Knattspyrnufélagið Bessastaðir og Skandinavía. Þau taka öll þátt í Mjólkurbikarnum í sumar. Blix er nýjasta afkvæmið úr röðum uppeldisstarfsins úr Breiðablik en þar munu gamlir Blikar og gamlir leikmenn Augnabliks, sameinast ungum 2.flokks drengjum úr Breiðablik sem eru að taka sín fyrstu skref. Blix mætir Njarðvík í fyrstu umferð Mjólkurbikarkeppninnar. Íþróttabandalag uppsveita, eða ÍBU, mun taka þátt í fyrsta skipti í 4.deildinni þetta sumar en um er að ræða drengi úr uppsveitum Árnessýslu það er að segja Hrunumannahreppi, Biskupstungum, Laugavatni, Skeiða og Gnúpverjahreppi og Grímsnesi. Liðið mun spila heimaleiki sína á Flúðum. ÍBU mætir SR í fyrstu umferð Mjólkurbikarkeppninnar. Knattspyrnufélagið Bessastaðir eða KFB er einskonar afkvæmi Álftaness með það hlutverk að styðja betur undir unga stráka sem hafa ekki fengið tækifæri með Álftanesi sem leikur í 3.deild karla. Liðið mun líklega spila á Bessastaðavelli eða við bæjardyrnar hjá forseta Íslands. KFB mætir Víði í fyrstu umferð Mjólkurbikarkeppninnar. Skandinavía er knattspyrnulið stofnað og þjálfað af Saint Paul Edeh en hann var liðtækur markaskorari í neðri deildunum hér á árum áður en hann kom upphaflega til Fram. Skandinavía hefur verið að safna liði og skilgreinir sig sem stolt félag með leikmenn með mismunandi uppruna. Skandinavía mætir Kórdrengjum á útivelli í fyrstu umferð Mjólkurbikarkeppninnar. Það má lesa meira um þessu nýju félög í frétt Fótbolta.net með því að smella hér.
Forseti Íslands Garðabær Íslenski boltinn KSÍ Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira