Man. City myndi hleypa Mahrez til PSG fyrir væna fúlgu Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2020 21:00 Riyad Mahrez á æfingu Manchester City 12. mars. vísir/getty
Riyad Mahrez gæti verið á förum frá Englandsmeisturum Manchester City til Frakklandsmeistara PSG í sumar en hann mun þó kosta skildinginn. Samkvæmt frétt Goal.com í dag munu forráðamenn Manchester City ekki standa í vegi fyrir því að Mahrez færi sig um set kjósi hann svo. Mahrez, sem er 29 ára gamall, hefur skorað 9 mörk og átt 14 stoðsendingar í 37 leikjum í öllum keppnum á leiktíðinni sem nú hefur verið gert hlé á vegna kórónuveirunnar. Sérfræðingur Goal.com um Manchester City, Jonathan Smith, segir að enska félagið hafi reynt að fullvissa leikmenn um að liðið muni spila í Meistaradeild Evrópu næsta vetur, þrátt fyrir Evrópubannið sem UEFA setti félagið í. Það breyti því ekki að ákveðnir leikmenn kunni að vilja færa sig um set vegna óvissuástandsins. Mahrez lék í Frakklandi til ársins 2014 þegar hann gekk í raðir Leicester frá Le Havre. Hann hefur orðið Englandsmeistari bæði með Leicester og Manchester City og unnið fleiri titla, auk þess að vera til að mynda kjörinn knattspyrnumaður Afríku árið 2016. „Ef að hann [Mahrez] ákveður að þetta sé rétt skref fyrir hann þá mun Pep Guardiola ekki standa í vegi fyrir neinum sem vill ekki vera þarna. En það er erfitt að sjá að City láti hann fara fyrir minna en 80 milljónir punda,“ segir Smith, sérfræðingur Goal.com.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira