Skoðun

Stéttarfélagið þitt á að vinna fyrir þig

Helga Guðrún Jónasdóttir skrifar

Kosningar eru hafnar í stjórnar- og formannskjöri VR. Mig langar í því sambandi að þakka félagsmönnum fyrir frábærar viðtökur síðustu vikurnar. Þetta hefur verið skemmtileg og gefandi kosningabarátta út af öllum þeim góðu símtölum sem ég hef átt við félagsmenn.

Framboð mitt stendur fyrir skýra sýn á VR.

VR er stórt og öflugt félag vegna þess að það spannar mikla breidd í launum og menntun félagsmanna. Þessum árangri hefur VR náð vegna þess að áhersla hefur verið lögð á góða og breiða þjónustu við félagsmenn.

VR getur gert svo miklu betur

Ég sé mörg áhugaverð sóknarfæri til að gera betur í þjónustu við félagsmenn. Ég tel að við eigum vannýtt sóknarfæri í kjarabaráttunni, hjá millitekjufólki, ekki hvað síst lægri millitekjuhópum félagsins, sem hafa mátt þola hlutfallslega mestu kaupmáttarskerðinguna í samanburði við þróun lægstu launa. Þá tel ég brýnt að rétta við markaðslaunakerfi VR, sem hefur verið helsta sérstaða félagsins og lykillinn að jákvæðri launaþróun innan VR.

Ég hef einnig verið að ræða mikið við félagsmenn um varasjóðinn okkar. Hann er augljóslega ekki að nýtast stórum hluta félagsmanna nógu vel. Hér er því að mínu mati augljóst sóknarfæri til að gera betur, s.s. með endurgreiðslum vegna kostnaðar við gleraugu og sálfræðiþjónustu, svo að dæmi séu tekin.

Við þurfum að berjast fyrir styttingu vinnuvikunnar, sterkari sjúkrasjóði – sem kominn er úr 9 mánuðum í 7 mánaða rétt, orlofsmálum og sumarbústöðum. Sóknarfærin til að gera betur eru mörg og brýn.

Framtíðin er núna

Við þurfum að einhenda okkur af fullum þunga í þróunarstarf vegna 4. iðnbyltingarinnar, en staðreyndin er sú að verulegar breytingar eru framundan á vinnumarkaðnum okkar í samsetningu og framboði starfa, ekki hvað síst störfum VR félaga. Þá munu aðgerðir vegna loftslagsbreytinga mjög líklega ýkja þessi áhrif, þannig að okkur er ekkert að vanbúnaði í þessum efnum í breiðu samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar.

Kjaramálin í loftslagsmálum eru einnig vaxandi áhyggjuefni, en nauðsynlegum aðgerðum fylgir kostnaður sem má ekki falla eingöngu á launafólk. Umskiptin sem eru framundan verða að fara fram með réttlátum hætti og af virðingu við launafólk.

Áhyggjuefnin eru mörg fleiri og ljóst er að við verðum að standa fast á okkar næstu misserin, á meðan við erum að ná okkur upp úr COVID kreppunni. Þess vegna þurfum við stórt og öflugt VR. Þess vegna þurfum við stéttarfélag sem vinnur fyrir þig.

Mundu að kjósa!

Mig langar mig að hvetja alla félagsmenn til að taka þátt í VR kosningunum 8. til 12. mars. Tveir skýrir valkostir eru í boði til formanns. Það er því um að gera að nýta lýðræðislegan rétt sinn og kjósa. Ég væri afar þakklát fyrir stuðning félagsmanna.

Áfram VR!

Höfundur er stjórnmála- og fjölmiðlafræðingur og býður sig fram til formanns VR.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×