Á skilorði vegna mótmæla við Alþingishúsið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. september 2021 11:01 Jón Steindór Valdimarsson þingmaður Viðreisnar var einn þeirra sem smokraði sér hjá varnarlínu mótmælenda. Vísir/Egill Mótmælandi sem var handtekinn eftir mótmæli No Borders við Alþingishúsið í mars árið 2019 er kominn á skilorð fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá aðalinngangi Alþingis við umrædd mótmæli. Mótmælandinn var sýknaður af því að hafa hindrað störf lögreglu á vettvangi.
Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli mótmælandans sem ákærður var fyrir að hafa óhlýðnast lögreglu á fyrrgreindan hátt. Var hann einnig ákærður fyrir að hafa hindrað lögreglumenn að störfum með því að stíga í veg fyrir þá er þeir voru að færa annan mótmælanda sem hafði verið handtekinn í átt að lögreglubíl á vettvangi. Mótmælin voru haldin 19. mars árið 2019 á vegum No Borders samtakanna. Verið var að mótmæla aðgerðum stjórnvalda sem tengjast brottvísum umsækjanda um alþjóðlega vernd. Tóku mótmælendur sér stöðu fyrir framan inngang Alþingishússins til að takmarka aðgengi að húsinu. Þrír handteknir Lögregla handtók að lokum þrjá mótmælendur fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu þegar þeir voru beðnir um að færa sig frá innganginum. Á meðal lykilgagna í dómsmálinu var myndbandið sem sjá má hér að neðan. Var það birt á vef Fréttablaðsins og sýnir aðgerðir lögreglu á vettvangi og viðbrögð mótmælenda við þeim. Í dómi héraðsdóms segir að myndbandið sýni að lögregla hafi endurtekið gefið fyrirmæli og viðvaranir á íslensku þess efnis að mótmælendur ættu að að færa sig frá aðalinnganginum. Þá sjáist þegar mótmælendurnir virðist ekki fara eftir fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá. Einnig sjáist þar sem mótmælendurnir standi að mestu kyrrir með hendur upp í loft með framvísandi lófa. Átti þátt í að trufla aðgengi Í niðurstöðukafla dómsins segir að gögn málsins sýni að mótmælendurnir hafi með háttsemi sinni truflað aðgengi að Alþingishúsinu. Lögregla hafi gefið mótmælendum fyrirmæli um að víkja frá aðalinnganginum. Brugðist hafi verið við þeim fyrirmælum með því að hópurinn færði sig lítils háttar til hliðar á meðan aðrir úr hópnum færðu sig endurtekið aftur að inngangunum. Segir í dóminum að líta verði svo á að mótmælandinn sem ákærður var í málinu hafi átt þátt í að trufla aðgengi að Alþingishúsinu og þar með óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá innganginum. Stuttu síðar var hann handtekinn eftir að hann steig í veg fyrir lögreglumenn, gekk hægt aftur á bak fyrir framan þá á meðan lögreglumennirnir voru að færa annann mótmælanda sem handtekinn hafði verið í lögreglubíl. Meðlimir No Borders mótmæltu fyrir framan Alþingishúsið í mars 2019.Vísir/Egill Fyrir dómi sagði mótmælandinn að fyrir honum hafi aðeins vakað að leita skýringa á því af hverju annar mótmælandi hafði verið handtekinn, hann hafi ekki ætlað að stöðva eða hindra handtökuna. Átti sér ýmsar málsbætur Svo virðist sem að myndbandið hafi leikið lykilhlutverk í málinu en í niðurstöðukafla dómsins segir að á upptökunni megi sjá að umræddur mótmælandi hafi stigið í veg fyrir lögreglumenn, gengið hægt aftur á bak fyrir framan þá, á meðan þeir voru að færa hina handteknu í lögreglubíl. Samrýnist þetta einnig vitnisburði aðalvarðstjóra í málinu. Féllst héraðsdómur á það að með þessari háttsemi hafi mótmælandinn hindrað lögreglumenn að störfum. Engu að síður var mótmælandinn sýknaður af þessum hluta ákærunnar en í dómi héraðsdóms segir að almennt séð séu slík brot sótt sem brot gegn valdstjórninni, það hafi hins vegar ekki verið gert í þessu máli. Í dómi héraðsdóms segir að mótmælandinn hafi sér ýmislegt til málsbóta. Hann hafi ekki áður gerst brotlegur við refsilög, tafir hafi orðið á meðferð málsins, auk þess sem að fyrir honum hafi vakað að standa vörð um mannúð og velferð fólks. Þá hafi ekkert komið fram um að hætta eða tjón hafi hlotist af háttsemi hans. Var það því niðurstaða héraðsdóms að fresta skuli ákvörðun refsingar í eitt ár haldi mótmælandinn skilorð. Að einu ári liðni fellur refsingin niður. Alls þarf mótmælandinn að greiða 275 þúsund krónur í sakarkostnað.
Dómsmál Alþingi Hælisleitendur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira