Innlent

Íslensk garðyrkja er á mikilli siglingu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Staða íslenskrar garðyrkju hefur sjaldan eða aldrei verið eins góð og í dag.
Staða íslenskrar garðyrkju hefur sjaldan eða aldrei verið eins góð og í dag. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Garðyrkjubændur bera sig vel enda hefur staða garðyrkjunnar sjaldan eða aldrei verið eins góð og í dag. Mikið hefur verið byggt af nýjum gróðurhúsum og útflutningur á íslenskum grænmeti er alltaf að verða meiri og meiri.

Umræða og vitundarvakning um íslenska garðyrkju hefur verið mjög áberandi upp á síðkastið, ekki síst gagnvart gæðum íslensks grænmetis. Garðyrkja er hærra skrifuð en hún hefur verið í mörg ár og sést það meðal annars í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá því í haust. Mikið hefur verið byggt af nýjum gróðurhúsum eins og í Reykholti í Bláskógabyggð og framleiðsla aukin.

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands er allavega mjög sáttur við stöðu mála.

„Það á að leggja töluverða áherslu á ylræktað grænmeti og útiræktað grænmeti, þannig að við finnum það að við erum farin að tikka hjá samfélaginu. Tækifærin eru alveg augljós og ég tala nú ekki um ef stuðningur ríkisins verður meiri en hann er í dag. Þá skapast augljós tækifæri fyrir fleiri að koma inn í greinina og það er náttúrulega það sem við sækjumst eftir en innflutningur á grænmeti á Íslandi er töluverður. Við höfum orkuna, landið og náttúruna og allt með okkur til að vera algjörlega sjálfbær í þessu,“ segir Axel.

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands. Hann er blómabóndi á Espiflöt í Reykholti.Ívar Sæland

Axel segir að garðyrkjubændur séu greinilega í tísku í dag hjá þjóðinni?

„Já, ég myndi segja það og ættum að vera það um ókomna tíð, við erum virkilega flottur og skemmtilegur hópur af landsbyggðafólki, sem hefur gaman af því að vinna með náttúrunni.“

En er verið að flytja eitthvað af íslensku grænmeti til útlanda?

„Já, meðal annars gúrkur, það er verið að flytja þær aðeins út og reyndar hefur útflutningur til Grænlands alltaf verið ágætur, bæði í gúrkum, tómötum og salati,“ segir Axel.

Fátt jafnast á við íslenskar gulrætur beint úr görðum garðyrkjubænda.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×