Lífið

Toddlers & Tiaras stjarnan Kailia Posey er látin

Elísabet Hanna skrifar
Kailia Posey er látin.
Kailia Posey er látin. TLC/Youtube

Toddlers & Tiaras stjarnan Kailia Posey er látin aðeins sextán ára gömul. Þættirnir voru sýndir á TLC á árunum 2009-2013 en móðir hennar, Marcy Posey Gatterman, greindi frá andláti hennar á Facebook fyrr í vikunni.

„Ég á engin orð. Elsku fallega stelpan mín er farin. Vinsamlegast gefið okkur næði til að syrgja,“

skrifaði móðir hennar. Kailia keppti í fegurðarsamkeppnum allt sitt líf og vann fjöldann allan af titlum. Fjölskyldan hennar staðfesti í samtali við TMZ að hún hafi tekið sitt eigið líf. 

„Þó svo að hún hafi afrekað mikið sem unglingur og hafi verið með bjarta framtíð fyrir framan sig, þá því miður í hvatvísi, tók hún þá skyndiákvörðun að enda líf sitt hér á jörðu,“ sagði fjölskyldan í yfirlýsingu. Kailia varð sextán ára í síðasta mánuði. 

Fjölskyldan var stolt af henni og sagði að henni hafi nú þegar boðist atvinnutilboð fyrir hæfileika sína og liðleika þar sem hún lék listir sínar. Hún hafði einnig verið valin til þess að vera hluti af klappstýruliðinu hjá skólanum sínum í haust.

Þættirnir Toddlers & Tiaras hlutu á sínum tíma mikla gagnrýni en fleiri barnastjörnur eins og Honey Boo Boo child byrjuðu ferilinn sinn þar. Í þáttunum var fylgst með börnum sem voru að keppa í fegurðarsamkeppnum og undirbúningnum fyrir þær. 


Tengdar fréttir

Trylltur heimur fegurðarsamkeppna barna vegur óhug

Nýjasti þátturinn í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Toddlers & Tiaras hefur vakið hörð viðbrögð víðsvegar um heim. Í þættinum klæðir móðir dóttur sína upp sem kyntáknið Daisy Duke og gefur henni orkudrykk í ómerktri flösku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.