Mikið hefur verið fjallað um framtíð grunnskólastarfs í Laugardal á síðustu árum, en starfshópur á vegum borgaryfirvalda kynnti þrjár mögulegar sviðsmyndir um framtíðarskipan skóla- og frístundastarfs í Laugarnes- og Langholtshverfi í borgarráði í nóvember síðastliðinn. Var ráðist í vinnuna vegna fjölgunar barna í hverfinu og að verulega væri farið að þrengja að húsakosti Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla.
Sigríður Heiða segir niðurstöðu skóla- og frístundaráðs sýna að þegar samfélag tekur sig saman þá geti góðir hlutir gerst. „Þessi samtakamáttur skiptir máli og það skiptir líka máli að það hafi verið hlustað,“ segir Sigríður Heiða.
Óskiljanlegt hvað þetta dróst lengi
Sigríður Heiða segir að þegar litið sé til baka þá er ljóst að ekki hefði þurft að fara í alla þessa vinnu tengda því að vinna sviðsmyndirnar varðandi framtíð skólanna í Laugardal.
„Þegar ég lít til baka… Síðari forsögnina sem unnin var árið 2019... Þörfin var líka til staðar þá. Það væri búið að byggja við skólana núna ef ákvörðun hefði verið tekin þá. Ég skil ekki af hverju þetta var dregið svona lengi. Mér finnst það óskiljanlegt.“
Fyrsta sviðsmyndin sem starfshópurinn teiknaði upp – og sú sem varð fyrir valinu í skóla- og frístundaráði – fól í sér að byggt yrði við skólana þrjá. Önnur sviðsmyndin fól í sér að tveir elstu árgangar Laugarnesskóla yrðu færðir yfir í Laugalækjarskóla og byggt við hann, en auk þess að byggt yrði við Langholtsskóla. Þriðja sviðsmyndin fól svo í sér að opnaður yrði nýr unglingaskóli í Laugardal fyrir alla unglinga úr skólunum þremur sem yrðu þá skólar fyrir nemendur í 1. til 7. bekk.
Borgin bretti upp ermar og byggi hratt
Aðspurð um hver skilaboðin frá henni séu núna bendir Sigríður Heiða á að það eigi náttúrulega eftir að taka endanlega ákvörðun.
„En ég trúi ekki öðru en að hún verði sú sama og hjá skóla- og frístundaráði. Það var samstaða þar. Nú þarf hins vegar að bretta upp ermar og byggja við skólana og það hratt. Þeir geta það alveg. Það þarf bara að byrja.“
Hún segir að framundan sé að ráðast í gerð teikninga, uppfæra rýmisáætlanir sem mikil vinna hafi verið lögð í árið 2019, breyta deiliskipulagi og svo bjóða verkin út. „Það þarf bara að drífa í þessu, ekki þannig að nýtt margra ára ferli hefjist núna. Við erum enn í sama vandanum, hann fer ekkert. Það heldur áfram að þrengja að okkur og ég treysti á að borgin hysji upp um sig og gangi í verkið með myndarbrag – verk sem nú þegar er búið að draga nógu lengi.“
Sigríður Heiða segir það einnig hafa verið frábært að hafa fylgst með því hvernig skólasamfélagið – foreldrar, börn, starfsfólk í skólunum og fleiri – hafi risið upp í þessu máli og tekið höndum saman. „Það gerði gæfumuninn, algjörlega.“
Einn sat hjá á fundi skóla- og frístundaráðs
Í fundargerð skóla- og frístundasviðs má sjá að fulltrúar allra flokka utan eins greiddu atkvæði með tillögunni um að velja þá sviðsmynd sem felur í sér að byggt verði við alla skólana þrjá.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, ákvað að sitja hjá við atgreiðsluna. Hún segir þó í bókun að það sé léttir að loksins hafi verið tekin ákvörðun um málið.
„Hjáseta Vinstri grænna í þessu máli felur ekki sér andstöðu við þá tillögu sem varð fyrir valinu og von um að hún njóti víðtækrar samstöðu í nútíð og tugi ára fram í tímann,“ segir Líf.