Félagslegt ofbeldi barnaverndar Sara Pálsdóttir skrifar 30. mars 2023 14:00 Í störfum sínum keppist barnavernd við að slíta öll tengsl fósturbarna við blóðfjölskyldur sínar, við rætur sínar, við líf sitt. Starfsmenn barnaverndar keppast við að koma í veg fyrir að börn verði vistuð hjá nánum fjölskyldumeðlimum, og reyna fremur að vista þau hjá ókunnugum aðilum, oft langt í burtu frá öllu sem þau þekkja og öllum sem þau elska. Þessum börnum er plantað á ókunnugu heimili, með ókunnuga „foreldra“, í ókunnugan skóla/leikskóla með ókunnugu starfsfólki, jafnvel í ókunnugan landshluta. Þau eru rifin frá öllum sem þau elska og þekkja og þeim er bannað að hitta fólkið sitt. Þeim er bannað að hitta mömmu og pabba, bannað að hitta ömmu og afa, frænku og frænda og jafnvel bannað að hitta systkini sín. Barnavernd hefur ekkert innsæi í það alvarlega trauma sem slíkt tengslarof felur í sér, viðvarandi áfallastreitu og stöðugan sársauka. Síðan fá þessi börn kannski að hitta ömmu og afa einu sinni á ári, í sérstöku lokuðu húsnæði á vegum barnaverndar, þar sem ókunnug manneskja situr yfir og horfir á allt sem er gert og hlustar á allt sem er sagt. Þau mega leika saman í klukkutíma. Ekki samt ræða um neitt sem skiptir máli, þá er gripið inn í. Setja upp bros og leikrit í klukkutíma. Knúsa svo bless. Ekki gráta, það má ekki sýna ójafnvægi. Bless í heilt ár, engin samskipti, engin símtöl, fréttir. Engar jólagjafir, engin afmæli, ekkert. Útilokun, fjölskyldusundrung og tengslarof. Þessi börn fá ekki að tilheyra fjölskyldu sinni lengur og fjölskyldan fær ekki að tilheyra þeim. Börnin fá svo að hitta pabba og mömmu tvisvar á ári, við sömu þvinguðu og niðurlægjandi aðstæðurnar. Mamma og pabbi eiga að brosa, vera glöð, leika saman í 1,5 klukkutíma, leika leikrit, þykjast og spila með. Bannað að gráta, það er ójafnvægi og þá stöðvast umgengnin. Þú mátt heldur ekki ræða um óréttlætið eða láta vanþóknun þína í ljós, þá stöðvast umgengnin og skrifuð verður um þig ljót skýrsla. Ekki tala um neitt nema yfirborðskennt bull sem skilur ekkert eftir sig. Mátt ekki tala um málið, mátt ekki útskýra hvað gerðist og af hverju, mátt ekki einu sinni tala um jólin. Ef þið fáið að labba út í ísbúð eltir ókunnuga eftirlitsmanneskjan ykkur. Hlustar á allt sem þið segið. Óttin heltekur. Þið verðið að brosa þegar kemur að kveðjustund, vitandi það að þið fáið ekki að hittast næstu 6 mánuðina. Fáið engar fréttir, engin símtöl, engin knús. Fjölskyldan er ónýt. Það má nefnilega ekki ,,raska stöðugleika þessara barna í fóstrinu“. Með því að elska þau, með því að eyða tíma með fjölskyldu sinni, með því að fara í jólaboð til afa og ömmu, með því að mamma lesi fyrir þau og knúsi og setji í háttinn. Þvílíkt stöðugleikarask! Á sama tíma og barnavernd fremur mesta stöðugleikarask gegn þessum börnum sem hægt er að fremja. Þetta er hræsni á hæsta stigi en það sem verra er, mannréttindabrot, ómannúðleg meðferð og pyntingar. Það hefði verið hægt að visa þessi börn hjá ömmu og afa. Þá hefði líka verið svo miklu miklu einfaldara fyrir börnin að fara aftur til mömmu og pabba þegar þau voru komin í bata og góða heilsu á ný. En nei, barnavernd neitaði og setti þau frekar til ókunnugra fósturforeldra. Af því að markmið barnaverndar er tengslarof og tenglaslit og að framleiða nýjar fjölskyldur fremur en að vernda blóð fjölskylduna. Í dómi Landsréttar nr. 260/2021 gerði barnavernd Kópavogs allt sem í þeirra valdi stóð til að tryggja endanlegt tengslarof og útilokun barns frá blóðfjölskyldunni sinni. Þar hafði foreldri sótt um að færa forsjá yfir til ömmu barnsins sem var mjög tengd barninu og vildi sjá um það. Ekkert lá fyrir annað en að öryggi barnsins yrði tryggt í umsjá ömmu. Barnavernd barðist harkalega gegn því og vildi forsjársvipta og koma barninu fyrir hjá ókunnugum. Sem betur fer sýknaði bæði héraðsdómur og Landsréttur foreldrið af kröfunni um forsjársviptingu og kvað skýrt á um að barnið yrði vistað hjá ömmu sinni. Með vísan til mannréttindasáttmála Evrópu, friðhelgi einkalífs og fjölskyldu, meginreglu barnaverndarlaga um meðalhóf og barnasáttmála SÞ auk rannsóknarskyldu barnaverndar, kvað dómurinn á um þá lagalegu skyldu barnaverndaryfirvalda að leita allra vægari úrræða áður en sett yrði fram krafa um forsjársviptingu, þar með sú skylda til aðkanna til fulls alla möguleika á að færa forsjá barns yfir til nákomins ættingja, áður en gripið er til forsjársviptingar (sjá Lrd. nr. 260/2021). Þetta hef ég aldrei séð gert af hálfu barnaverndaryfirvalda, þvert á móti er keppst við að vista börnin utan stórfjölskyldunnar, líkt og augljóslega var gert í þessu tiltekna máli. Ítrekað hef ég séð barnavernd synja heilbrigðum og reglusömum stórfjölskyldumeðlimum um að fá börn til sín í fóstur, og barnavernd fremur vistað börnin hjá ókunnugum aðilum og í framhaldi slitið öll tengsl barnanna við fjölskyldur sínar og útilokað þessi börn frá fjölskyldu sinni. Ég hef undir höndum tölvupóst frá lögfræðingi barnaverndar Reykjavíkur, þar sem hann fullyrðir að barnavernd telji sig engar skyldur bera, til að leitast eftir því að börn séu vistuð innan fjölskyldunnar fremur en hjá ókunnugum fósturforeldrum. M.ö.o., barnavernd telur sig hvorki bundna af lögum, mannréttindum né stjórnarskrá þegar kemur að framkvæmd starfa sinna enda blasir það við þegar vinnubrögðin eru skoðuð. Ég var gestur í Spjallinu hjá Frosta nýlega þar sem ég ræddi þessi brýnu mál. Horfa má á brot úr þættinum hér. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sara Pálsdóttir Mest lesið Hvaða módel ertu? Heiðdís Geirsdóttir Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson Skoðun Lygin um flóttamenn á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Það er allt í lagi að vera þú sjálfur - Opið bréf til Snorra Mássonar Kári Stefánsson Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Héraðsvötnin eru hjartsláttur fjarðarins Rakel Hinriksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvers vegna halda Íslendingar með Dönum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað varð um þinn minnsta bróður? Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til að verða bergnuminn Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Þriðja leiðin í námsmati stuðlar að snemmtækri íhlutun Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Alma D. Möller skrifar Skoðun Hækkun skrásetningargjalds – Segjum sannleikann Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar Skoðun Hvaða módel ertu? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Blóðbað í Súdan: Framtíðarannáll? Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Sparnaðartillögur á kostnað atvinnulausra Finnbjörn A Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Atvinnustefna þarf líka að fjalla um rótgrónar atvinnugreinar Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Á að hita upp allan Faxaflóann? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Á tímamótum: Sameinuðu þjóðirnar í 80 ár Vala Karen Viðarsdóttir,Védís Ólafsdóttir skrifar Skoðun Borgar sig að vanmeta menntun? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Samfylkingin hækkar gjöld á háskólanema Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Aðgerðaáætlun í menntamálum ekki markviss Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Hermína Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Héraðsvötnin eru hjartsláttur fjarðarins Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Lygin um flóttamenn á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Mismunun skýrir aukningu erlendra fanga Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Farsæld barna í fyrirrúmi Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Hlúum að persónumiðaðri nálgun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir skrifar Skoðun Viljum við stjórnarandstöðu sem þvælist ekki fyrir? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólar hafa stigið skrefið með góðum árangri Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varst þú að kaupa gallaða fasteign? Sara Bryndís Þórsdóttir skrifar Skoðun Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Glæpir“ Íslendinga Árni Davíðsson skrifar Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar Skoðun Fleiri átök = verri útkoma í lestri? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Skoðun Dagur sjálfsvígsforvarna – tryggjum raunverulegt aðgengi að sálfræðimeðferð Pétur Maack Þorsteinsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur sjálfsvígsforvarnardagur – mikilvægi samtals og samkenndar Ellen Calmon skrifar
Skoðun Sparnaðartillögur á kostnað atvinnulausra Finnbjörn A Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Atvinnustefna þarf líka að fjalla um rótgrónar atvinnugreinar Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Aðgerðaáætlun í menntamálum ekki markviss Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Hermína Gunnþórsdóttir skrifar
Skoðun Störf án staðsetningar - of hátt flækjustig eða rökrétt framþróun? Hildur Ösp Gylfadóttir,Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir skrifar
Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar