Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. maí 2024 19:02 Guðrún Arnardóttir í leik með FC Rosengård. Vísir/Getty Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn þegar Rosengård lagði Häcken í efstu deild sænska fótboltans í kvöld. Guðrún var ekki eini Íslendingurinn sem kom við sögu í kvöld en Katla Þórðardóttir skoraði mark Örebro sem hefur ekki enn unnið leik.
Guðrún og stöllur hennar í Rosengård hafa farið vel af stað og eru með fullt hús stiga að loknum sex leikjum. Guðrún lék að venju allan leikinn í hjarta þriggja manna varnar liðsins sem vann 2-0 sigur í kvöld þökk sé mörkum Momoko Tanikawa og Olivia Schough. Rosengård með 18 stig að loknum sex leikjum líkt og Hammarby sem vann 1-0 sigur á Pitea í kvöld. Bæði lið hafa aðeins fengið á sig tvö mörk til þessa. Íslendingalið Örebro tapaði sjötta leik sínum í röð í kvöld þegar liðið lá 2-1 gegn Norrköping. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var í byrjunarliði Örebro líkt og Katla María Þórðardóttir. Áslaug Dóra var tekin af velli í hálfleik en í hennar stað kom Bergþóra Sól Ásmundsdóttir inn af bekknum. Katla María lék allan leikinn og skoraði mark Örebro þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Það dugði ekki til þar sem Norrköping skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og Íslendingaliðið situr því sem fastast á botni deildarinnar.
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Sjá meira