Lík konunnar fannst í fyrirlestrasal í R G Kar háskóla í Kolkata borg í síðustu viku. Hún var hálfnakin og hafði mikla áverka. Konan fór í fyrirlestrasalinn til að hvíla sig á meðan hún var á vakt á spítalanum. Sjálfboðaliði fyrir lögreglumenn á spítalanum hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.
Læknasamtökin á Indlandi boðuðu svo við lok síðustu viku til mótmæla þar sem þess var meðal annars krafist að öryggi lækna yrði tryggt, að auka ætti öryggisráðstafanir á spítölum og að það ætti að búa til örugg rými fyrir lækna til að hvíla sig á. Í bréfi sem samtökin sendu á forsætisráðherra landsins, Narendra Modi, vegna mótmælanna var meðal annars bent á að um 60 prósent allra lækna á Indlandi eru konur. Nauðsynlegt sé að starfsfólk spítala sé tryggt öryggi og langt til að öryggisreglur á spítölum verði eins og á flugvöllum.
Ekki nóg árið 2012
Fjölmargir hafa sýnt samstöðu með mótmælum læknanna og hafa verið haldnir samstöðufundir og samstöðugöngur víða um Indland síðustu daga. Í umfjöllun Reuters um mótmælin segir að kvenkyns aðgerðarsinnar segir atvikið varpa ljósi á það hvernig konur í landinu þjáist enn þrátt fyrir að löggjöf sem tekur á kynferðislegu ofbeldi hafi verið hert í kjölfar hópnauðgunar í strætó í Delí árið 2012.
„Dóttir mín er farin en milljón dætur og synir eru nú með mér,“ er haft eftir faðir konunnar sem vart myrt. Samkvæmt indverskum lögum má ekki nafngreina hann en haft er eftir honum að mótmælin hafi gefið honum styrk.
Hvetja lækna til að mæta aftur
Í frétt Reuters segir að mótmælt hafi verið við spítalann í Kolkata allt frá því að atvikið átti sér stað. Lögreglan hafi reynt að banna mótmæli við hann en að fólk hafi mótmælt því með því að koma saman áfram við spítalann.
Yfirvöld á Indlandi hafa hvatt lækna til að snúa aftur til vinnu til að takast á við fjölgun tilfella malaríu og dengue og segjast ætla að skipa nefnd sem eigi að tryggja öryggi heilbrigðisstarfsmanna.
Forseti læknasamtakanna, Madan Mohan Paliwal, segir flesta lækna hafa farið aftur til vinnu eftir að verkfallinu lauk. Samtökin muni bíða eftir viðbrögðum yfirvalda en ef að þau álíti viðbrögð yfirvalda ekki nægjanleg muni læknar efna til fleiri verkfalla og þau muni þá taka til neyðarviðbragða líka.
Í frétt Reuters segir að þó svo að margir starfandi læknar hafi snúið aftur til vinnu hafi ekki allir læknanemar gert það. Fjölmargir þeirra neiti að koma aftur til vinnu fyrr en búið er að handtaka fleiri og rannsaka málið betur.