Orri í byrjunar­liði Real Sociedad sem mis­tókst enn og aftur að skora

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Real Sociedad í dag.
Orri Steinn Óskarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Real Sociedad í dag. getty/Rafa Babot

Íslenski landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson þreytti frumraun sína í byrjunarliði Real Sociedad þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Real Sociedad keypti Orra frá FC Kaupmannahöfn um mánaðarmótin. Hann kom inn á sem varamaður í fyrstu þremur leikjum sínum með baskneska liðinu en fékk tækifæri í byrjunarliðinu í dag.

Orri komst ekki mikið áleiðis, ekki frekar en aðrir sóknarmenn á vellinum, og var tekinn af velli á 61. mínútu. Liðin áttu aðeins samtals fimm skot á markið í fremur bragðdaufum leik.

Real Sociedad hefur ekki skorað í síðustu fjórum leikjum sínum og er í 16. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með fimm stig.

Næsti leikur liðsins er gegn Nice í Evrópudeildinni á miðvikudaginn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira