Skoðun

Hugum að loft­gæðum, heilsu og sjálf­bærni um jólin – eigum loft­gæða jól!

Heiða Mjöll Stefánsdóttir og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifa

Jólin geta verið dásamlegur tími þrátt fyrir skammdegið, sem við lýsum þá upp með ljósaseríum eða kertum í faðmi fjölskyldu og vina. Þessum tíma geta líka fylgt áskoranir m.t.t loftgæði innandyra.

Sem dæmi geta skert loftgæð haft áhrif á þurrk í hálsi og augum, nefstíflur eða jafnvel valdið höfuðverk. Við tengjum þessi einkenni oft við skammdegið, álag eða kulda, en á sama tíma er vert að hafa loftgæði á heimilinu í huga.

Hátíðarljós og kerti

Kertaljós skapa hlýja stemningu, en þau losa einnig mengandi efni eins og rokgjörn lífræn efni (VOC) og sót sem hafa áhrif á loftgæði. Ef kerti eru ilmandi eða lituð getur það aukið magn óæskilegra efna í loftinu. Þau fela einnig í sér brunahættu. Það er gott ráð að lofta reglulega út, veldu ólituð kerti úr náttúrulegum efnum, hafðu þau fjarri skreytingum og slökktu á þeim þegar þú yfirgefur herbergi.

Jólatré og skraut

Gervijólatré og nýhöggvin tré geta bæði haft áhrif á loftgæðin. Gervitré losa rokgjörn efni (VOC) og eru úðuð með eldtefjandi efnum, en náttúruleg tré geta borið með sér frjókorn og sveppagró. Viðrið gervitré í nokkra daga fyrir notkun, og skolaðu náttúruleg tré áður en þau fara inn. Veljið vistvænt skraut til að minnka innflutning skaðlegra efna.

Gjafir og loftgæði

Gjafir, sérstaklega frá löndum með minna eftirlit, geta stundum losað efni eins og þalöt, BPA og PFAS. Þessi efni geta verið hormónatruflandi og valdið ertingu í slímhúð. Ef mikil og sterk lykt er af hlutnum er ráð að setja hann ekki strax í svefnrými, og gott ef hægt er að strjúka af honum með rakri tusku og reyna svo að láta lofta um hann afsíðis. Reynið að opna gjafir í loftræstu rými, opna glugga og forðist vörur úr plasti án vottana.

Veljið vistvænar eða sjálfbærar gjafir og notið umhverfisvænar umbúðir. Losið plast umbúðir um leið og hægt er í lokaðar sorptunnur/ílát. Þvoið fatnað áður en hann er notaður.

Sjálfbærni og umhverfi

  • Endurnýtið: Notið gjafapappír, merkimiða og skraut aftur.
  • Gefið upplifanir: Gjafir sem stuðla að minni sóun og ánægju.
  • Skipuleggið innkaup: Forðist matarsóun og nýtið afganga vel.

Hagnýt lausn fyrir hátíðarnar

Loftræstu reglulega, fylgstu með loftraka og tryggðu góð loftskipti. Lítill raki dregur úr líkum á myglu og bætir loftgæðin. Gott jafnvægi er lykillinn að heilbrigðu heimili.

Með litlum breytingum getum við gert hátíðarnar notalegri, heilbrigðari og vistvænni. Gleðileg loftgæða jól!

Höfundar er Heiða Mjöll Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá LSH og Sylgja Dögg lýðheilsu- og líffræðingur hjá VERKVIST verkfræðistofu báðar í stjórn IceIAQ samtök um loftgæði og ráðstefnustjórn Healthy buildings Iceland 2025




Skoðun

Sjá meira


×