Innlent

Slitlag lagt að fossinum Dynjanda í næsta mánuði

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá vegagerð við fossinn Dynjanda. Stefnt er að því að bundið slitlag verði lagt á þennan kafla í næsta mánuði.
Frá vegagerð við fossinn Dynjanda. Stefnt er að því að bundið slitlag verði lagt á þennan kafla í næsta mánuði. Vegagerðin

Vegagerðin segir vonir standa til að hægt verði að klæða Dynjandisveg, það er veginn inn að fossinum Dynjanda, í ágústmánuði. Þetta er stuttur vegarkafli sem liggur frá Vestfjarðavegi að þessu helsta náttúrudjásni fjórðungsins.

Í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að framkvæmdir við þriðja og síðasta áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði hafi hafist í byrjun júnímánaðar. Verktaki er Borgarverk og Verkís sér um eftirlit.

Í verkinu felst nýbygging Vestfjarðavegar á 7,2 kílómetra kafla, sem verður að mestu í nýju vegstæði, auk tæplega eins kílómetra kafla á Dynjandavegi að fossinum.

Frá vinnu í Dynjandisvogi í Arnarfirði. Verkinu á að ljúka í lok september á næsta ári.Vegagerðin

„Framkvæmdir hafa farið vel af stað. Helstu verkefni eru að nú er unnið að sprengingum og fyllingum í nýju vegstæði Vestfjarðavegar. Jafnframt stendur yfir vinna við sprengingar og mölun á klæðingarefni í Trölladalsnámu.

Síðustu vikurnar hefur verið unnið við að losa lausa kletta í Fremridal en ekki var talið óhætt að vinna undir klettunum vegna hættu á grjóthruni. Unnið verður áfram næstu daga og vikur.

Losa þarf um lausa kletta ofan vegarins. Horft niður í Dynjandisvog.Vegagerðin

Á Dynjandisvegi er unnið á um 400 metra kafla. Þegar er búið að setja niður tvö stór ræsi í ánni Svínu, sem fellur í Dynjandisvog. Vonir standa til þess að hægt verði að klæða Dynjandisveg í ágúst, en umferð ferðamanna er mikil á þessum slóðum, ekki síst yfir sumartímann,” segir Vegagerðin.

Jafnframt kemur fram að einnig verði gert keðjunarplan og nýr áningastaður fyrir vegfarendur. Stefnt sé að því að verkinu ljúki í lok september 2026.


Tengdar fréttir

Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum.

Vestfirðingar þokast nær langþráðum vegabótum

Borgarverk í Borgarnesi átti lægsta tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og reyndist tilboð verktakans 280 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Vegagerðin snertir helsta náttúrudjásn Vestfjarða, fossinn Dynjanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×