Innlent

Far­þeginn enn í haldi lög­reglu

Tómas Arnar Þorláksson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Eftirförin náði yfir Hellisheiði.
Eftirförin náði yfir Hellisheiði. Vísir

Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar fjórir lögreglubílar veittu stolnu ökutæki eftirför í gærkvöldi. Tveir voru handteknir grunaðir um þjófnað.

Eigandi bifreiðarinnar, sem er hvít af Hyuandai-gerð, segir í samtali við fréttastofu að úlpu hennar með bíllyklum hafi verið stolið í fatahengi á vinnustað hennar um hádegisleytið. 

Síðar sást til bifreiðarinnar við Olís í Norðlingaholti og var lögreglu gert viðvart. Lögreglan náði ökutækinu við Litlu kaffistofuna.

Hún hafi ekki áttað sig á því að bifreiðin væri á bak og burt fyrr en vinnudegi hennar lauk. Hún fékk ökutækið afhent aftur frá lögreglu í dag. Þar sinnti ökumaðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og við tók eftirför yfir Hellisheiðina. Lögreglan á Suðurlandi mætti bifreiðinni við Kambana þar sem eftirförinni lauk. 

Kona og maður voru handtekin á vettvangi grunuð um þjófnað og akstur undir áhrifum fíkniefna. Manninum var sleppt úr haldi að lokinni yfirheyrslu. Konan er enn í haldi lögreglu grunuð um fleiri brot. 

Manninum var sleppt úr haldi að lokinni yfirheyrslu. Konan er enn í haldi lögreglu grunuð um fleiri brot. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Eigandi bifreiðarinnar segist hafa verið mjög áhyggjufullur að vita af bílnum sínum í höndum einhvers annars á Hellisheiðinni og þakkar fyrir að ekki hafi farið verr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×