Íbúar í Reykjavík skipta máli ‒ endurreisum íbúaráðin Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar 16. janúar 2026 13:00 Í borg ‒ í samfélagi hafa allir hlutverk ‒ misstórt, mismikið, en öll berum við ábyrgð á okkur sjálfum og nærsamfélaginu. Í sveitarstjórnarkosningum er fólk valið til frekari ábyrgðar. Þá kjósum við fulltrúa sem hafa það hlutverk að reka samfélagið, sveitina, borgina og allt þar á milli, á því kjörtímabili. En eru þá íbúarnir stikkfrí eftir að hafa valið sér sína fulltrúa ? Svarið er nei, síður en svo. Um alla Reykjavíkurborg er fullt af grasrótarsamtökum sem vilja betra samfélag, betri borg. Auðvitað á mismunandi forsendum. Hér mætti nefna ein samtök sem hafa haft sig í frammi að undanförnu ‒ samtökin Hljóðmörk sem vilja minna ónæði af flugvellinum, vilja búa í sátt við áætlunar- og sjúkraflug, að minnsta kosti að sinni, að en forðast óþarfa hávaða, óþarfa flug. Og er það ekki bara ágætt? Að grasrótarsamtökin sjái um að koma fram með málin og kynna þau? Svarið er aftur nei. Það þarf meira til. Íbúaráðin ‒ endurreisum þau Síðustu ár hefur Reykjavíkurborg haldið úti svokölluðum íbúaráðum í gegnum Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Þessi ráð voru illu heilli lögð niður við myndun síðasta meirihluta að kröfu eins af flokkunum sem nú stýra borginni. Hver var svo tilgangur þessara íbúaráða ? Hafa þau raunverulega rödd ? Svarið er já. Þau hafa tilgang og rödd, sé til þess pólitískur vilji, raunverulegur. Íbúaráðin geta verið ventill í hverfunum fyrir íbúana, sá staður þar sem íbúar geta mætt, þar sem allir fundir hafa verið og eiga að vera opnir til að íbúarnir geti fylgst með breytingum í nærumhverfinu, svo sem í skipulagi, einstökum breytingum á götum og gatnamótum og öllu öðru sem íbúar í hverfunum eiga að geta kynnt sér og tjáð sig um. Samfylkingin stendur heils hugar með íbúum og hefur lagt sig fram við að halda úti íbúaráðunum og hvetja þau til dáða. Ég hef sjálfur setið í svona ráði ‒ starfaði þar í fimm ár sem fulltrúi íbúasamtaka 3. hverfis, það er að segja í Hlíðum, Mýrum og Holtum. Þar sat ég ásamt pólitískt kjörnum fulltrúum bæði frá bæði meirihluta og minnihluta, og fólki frá öðrum íbúasamtökum og foreldrafélögum í skólunum í hverfinu. Styrkur ráðanna ‒ og veikleikar Í starfinu með fólkinu í íbúaráði kynntist ég bæði styrkleikum slíkra ráða og veikleikum. Styrkleikarnir felast í því að þar var oft upphafspunkturinn fyrir þau mál sem íbúar komu með til ráðsins. Eins komu í ráðið mál sem voru umdeild, og máttu þá þola umræðu og gagnrýni sem var svo aftur skilað til sviðanna í borginfi sem voru að vinna málin. Hér er það sem má gera svo miklu betur. Ef íbúar vilja hafa áhrif á sín mál og bera ábyrgð, þá þarf meira til. Það þarf að fá íbúaráðunum mun meira vægi en tíðkaðist innan borgarkerfisins, þannig að raddir íbúa og alls kyns athugasemdir fái að heyrast og berast þangað sem þær skipta máli. Ég hef talað fyrir auknu vægi íbúaráða, bæði sem grasrótarmaður innan Samfylkingarinnar í Reykjavík og sem fulltrúi íbúasamtaka. Það þarf að skilgreina vægi ráðanna, og fjölga snertiflötum við fulltrúa sviðanna innan borgarinnar. Eins þarf að athuga mögulega lagastoð slíkra ráða þannig að umsagnir þeirra hafi ákveðið gildi, þá þannig að raddir íbúa heyrist raunverulega þangað sem máli skiptir. Sá böggull fylgir skammrifi að meira lýðræði af þessu tagi fylgir kostnaður, umstang og eftirrekstur. Það ætti ekki að koma í veg fyrir að íbúar geti komið beint fram með sínar athugasemdir í gegnum þann ventil sem íbúaráðin í Reykjavík eiga að vera. Komist ég í þá stöðu að fylgja eftir jafnaðarstefnu Samfylkingarinnar eftir kosningarnar í maí, þá ætla ég að fylgja þessu máli eftir. Það er mín ábyrgð og minn vilji. Því íbúar Reykjavíkur skipta máli. Sigfús í sexuna ! Höfundur er formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og sækist eftir 6. sæti í forvali jafnaðarmanna laugardaginn 24. janúar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar