Guðmund Inga í 3. sætið Birgir Dýrfjörð skrifar 21. janúar 2026 09:31 Ég hef kynnst Guðmundi Inga í gegnum langan tíma og fylgst með vegferð hans í nálægð. Hann hefur staðið þar sem margir standa í dag, utan kerfisins, utan traustsins og oft utan vonarinnar. Slík reynsla mótar fólk og skilur eftir ör sem hverfa ekki. Guðmundur Ingi er vitur maður, sem með ásetningi og ótrúlegum námsárangri og einlægum vilja, hefur tekist að nýta dýrkeypta og sára reynslu sína sem grundvöll að ábyrgu innsæi og einlægum vilja til að bæta samfélagið. Ástæðan fyrir því að Guðmundur Ingi sækist eftir sæti í borgarstjórn Reykjavíkur er ekki persónulegur metnaður til metorða heldur skýrt samfélagslegt erindi. Hann vill vera fordæmi um að fólk geti risið upp eftir áföll og slæmar ákvarðanir, tekið ábyrgð og gegnt mikilvægu hlutverki í samfélagi sínu. Hann vill vinna að því að samfélag okkar verði reiðubúið að gefa þeim sem villast af leið önnur tækifæri. Að það verði reiðubúið að veita traust og horfa til þess hver viðkomandi er í dag og hvað hann hefur fram að færa. Guðmundur Ingi er ekki undantekning. Hann er lifandi fyrirmynd þess að fólk getur breyst. Hann þráir af öllu hjarta að þeir sem standa í þeim sporum sem hann sjálfur stóð í áður sjái að leiðin aftur inn í samfélagið er raunverulega opin og fær, ekki aðeins í orði heldur í verki. Takist honum að ná sæti í borgarstjórn Reykjavíkur verður það ekki aðeins táknrænn sigur heldur raunverulegt hvatningarafl fyrir fjölda fólks sem enn efast um eigið gildi og möguleika. Þá verður sýnilegt að ef Guðmundi Inga tókst að fara þessa leið, þá er hún einnig fær öðrum. Þau sem hafa áhuga á að kynna sér framboð Guðmundar Inga nánar eða eiga samtal við hann geta haft samband með tölvupósti á netfangið frambod@gudmunduringi.is Frekari upplýsingar má einnig finna á heimasíðunni gudmunduringi.is Á heimasíðu Samfylkingin er jafnframt hægt að skrá sig í flokkinn og taka virkan þátt í mótun réttláts og mannúðlegs samfélags á slóðinni www.xs.is/takathatt Birgir Dýrfjörð, rafvirki og áhugamaður um mannréttindi. Höfundur hefur starfað lengi innan Samfylkingarinnar og fylgst náið með vegferð Guðmundar Inga. Setjum hann í 3.sætið Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birgir Dýrfjörð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar