Dóra Björt er ljúfur nagli Eydís Sara Óskarsdóttir skrifar 22. janúar 2026 09:00 Dóra Björt hefur á undanförnum árum aflað sér umtalsverðrar reynslu í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún var kjörin yngsti forseti borgarstjórnar í sögu borgarinnar og hefur síðan gegnt ábyrgðarmiklum hlutverkum, meðal annars sem formaður skipulagsráðs. Sú reynsla hefur veitt henni góða yfirsýn yfir stjórnsýslu borgarinnar og þau flóknu verkefni sem henni fylgja. Dóra er búsett í Grafarvogi og hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að samsetning borgarstjórnar endurspegli fjölbreytileika borgarinnar í allri sinni margbreytni. Hún er móðir ungra barna og nýtir þjónustu borgarinnar í daglegu lífi, sem gerir það að verkum að hún hefur raunhæfa innsýn í hvernig kerfið virkar í framkvæmd, t.a.m í leikskóla-, samgöngu- og skipulagsmálum. Áður en hún hóf störf í borgarstjórn bjó Dóra um árabil erlendis, einkum í Noregi. Þar kynntist hún öðruvísi nálgunum í borgarskipulagi og samfélagsuppbyggingu en tíðkast í Reykjavík, þar sem áhersla er lögð á mannvænt skipulag og fjölbreytta ferðamáta. Sú reynsla hefur mótað áherslur hennar í umræðunni um borgarþróun og sjálfbærar lausnir. Hreinskilni og heiðarleiki eru með stærstu kostum Dóru og þegar hún vissi að hún ætti ekki lengur samleið með sínum gamla flokki vildi hún ganga hreint til verks, enda er hún í pólitík af ástríðu. Það skipti hana máli að vera á réttum stað og mér finnst það virðingarvert. Í störfum sínum hefur hún jafnframt lagt ríka áherslu á að svara fyrir erfið mál sem komið hafa upp og axlað ábyrgð, einnig í þeim tilvikum þar sem hún sjálf kom ekki að upphaflegri vinnslu mála sem síðar vöktu gagnrýni. Hún tók meira að segja ábyrgð í máli Græna gímaldsins, jafnvel þó hún hafi verið í fæðingarorlofi þegar skipulag þess var tekið fyrir í skipulagsráði. Mörg hefðu reynt að komast undan því að svara en hún tók ábyrgð sína alvarlega sem formaður skipulagsráðs þegar málið kom upp þrátt fyrir að hún hafi ekki komið persónulega að skipulaginu. Borgarhönnunarstefnan hefur verið eitt af stærstu baráttumálum Dóru sem hún, ásamt sínum samstarfsflokkum, leiddu til lykta í haust. Þar mun vera tryggt að farið verði eftir vissum gæðastöðlum í uppbyggingu og borgarþróun til að koma í veg fyrir að þau mistök sem gerð hafa verið heyri sögunni til. Dóra gerir ríkar kröfur til sjálfrar sín og hefur tekið skýra afstöðu gegn hvers kyns undirlægjuhætti eða bittlingastarfsemi í stjórnmálum. Hún leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, vandaðan undirbúning mála og skýra ábyrgð kjörinna fulltrúa. Hún er kjarkmikil og þorir að taka slaginn, gefur ekkert eftir, en gengst við mistökum og kann líka að biðjast afsökunar. Hún kynnir sér málin til hlítar og enginn kemur að tómum kofanum hjá henni. Hún tekur ábyrgð sína sem kjörinn fulltrúi mjög alvarlega og leggur sig alla fram. Hún er öflug, berst fyrir jöfnuði og er með hlýtt hjarta sem ekkert aumt má sjá. Dóra Björt er ljúfur nagli. Þess vegna ætla ég að kjósa hana ofarlega á lista Samfylkingarinnar þann 24. janúar næstkomandi. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar